Borgarstjóraefni New York sem rappaði um ömmu sína

Zohran Mamd­ani er fyrsti múslim­inn til að tryggja sér til­nefn­ingu Demó­krata­flokks­ins í embætti borg­ar­stjóra New York, en sömu­leið­is sá yngsti. Mamd­ani er tákn­mynd vinstri­bylgju í banda­rískri borgar­póli­tík með áherslu á jöfn­uð og vel­ferð. Hann hef­ur ver­ið gagn­rýnd­ur fyr­ir reynslu­leysi en líka fyr­ir stuðn­ing sinn við Palestínu.

Borgarstjóraefni New York sem rappaði um ömmu sína
Zohran Mamdani þegar hann ávarpaði stuðningsfólk sitt eftir að hann var kjörinn frambjóðandi demókrata til embættis borgarstjóra New York. Í bakgrunni stendur Afford to Live & Afford to Dream en í kosningabaráttunni lagði hann áherslu á að venjulegt fólk hefði efni á að búa í borginni. Mynd: AFP

Sigur Zohran Mamdani í forvali demókraka fyrir borgarstjórakosningarnar í New York hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að nái hann kjöri verður hann fyrsti músliminn til að stýra borginni. 

Hann er einnig yngstur til að tryggja sér tilnefningu demókrata til embættisins en Mamdani er aðeins 33ja ára gamall. Hann er sonur innflytjenda af indverskum uppruna, fæddist í Úganda en flutti sjö ára gamall með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna. Foreldrar hans eru Mahmood Mamdani, fræðimaður í stjórnmála- og mannfræði og kennari við Columbiaháskóla, og Mira Nair, kvikmyndagerðarkona sem meðal annars er þekkt fyrir indversku myndina Monsoon Wedding. Mamdani er giftur sýrlensku listakonunni Rama Duwaji sem hann kynntist á stefnumótaforritinu Hinge.

Lagði Cuomo að lokum

Í forvalinu lagði hann Andrew Cuomo sem er fyrrverandi ríkisstjóri New York. Cuomo sagði af sér embætti fyrir fjórum árum vegna ásakana um kynferðislega áreitni, eftir að þrettán konur sökuðu hann um að hafa áreitt sig kynferðislega, en hafði stefnt á pólitíska endurkomu með framboðinu nú. Cuomo þótti sigurstranglegur lengi vel en undir lokin var talið nær öruggt að Mamdani myndi standa uppi sem sigurvegari. 

Hér taka níu frambjóðendur demókrata þátt í kappræðum í aðdraganda kosninganna en að lokum var ljóst að baráttan stóð fyrst og fremst milli Mamdani og Cuomo.

Fyrirfram voru kosningarnar sagðar mikilvægar fyrir mótun demókrataflokksins gegn stefnu repúblíkana undir forystu Trump. Þannig hefur árangur Mamdani verið túlkaður sem áfellisdómur yfir þeim armi demókrata sem studdi Cuomo, sem ætlar hins vegar ekki að láta deigan síga og stefnir á óháð framboð til borgarstjóra.

Kosningarnar fara fram í nóvember og þá ætlar sitjandi borgarstjóri, demókratinn fyrrverandi Eric Adams, að bjóða sig fram til endurkjörs sem óháður frambjóðandi. New York er svokallað blátt ríki og er því líklegt að frambjóðandi demókrata verði kjörinn í nóvember. 

Eftir að Mamdani fagnaði sigri skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðlinn sinn, Truth Social, að í þetta skiptið hefðu demókratar farið yfir strikið: „Zohran Mamdami, 100% kommúnistabrjálæðingur, var að vinna forvalið hjá demókrötum, og er á leiðinni að verða borgarstjóri.”

Þá hefur þingmaður Repúblíkana í Tennessee, Andy Ogles, krafist þess að ríkisborgararéttur Mamdani verði afturkallaður og hefur hann sent dómsmálaráðherra bréf þar sem hann hvetur til þess að rannsakað verði hvort Mamdani hafi fengið ríkisborgararétt með „vísvitandi rangfærslum eða leynd á stuðningi við hryðjuverkastarfsemi.“ Þessar kröfur Ogles eru hins vegar taldar afar langsóttar ef frá eru taldir harðlínurepúblíkanar.

Ný nálgun á kosningabaráttu

Mamdani var kjörinn á ríkisþing New York fyrir kjördæmi í Queens árið 2020, þar sem hann hefur lagt áherslu á húsnæðismál, samgöngur, umönnun barna og umhverfisvernd. Hann tilheyrir bæði Demókrataflokknum og samtökunum Sósíalískir demókratar Bandaríkjanna, og er þekktur fyrir skýra vinstristefnu sína. 

Hann náði miku fylgi með boðun á frystingu húsaleiguverðs, ókeypis dagvistun og öðrum breytingum sem þykja afar róttækar fyrir New York borg. Mamdani talar einnig fyrir ókeypis almenningssamgöngum og skattlagningu auðmanna til að fjármagna félagsleg umbótakerfi.

Hann nýtur vinsælda meðal ungs fólks og samfélaga innflytjenda í borginni en í kosningabaráttunni gerði hann myndbönd þar sem hann talaði ekki bara ensku heldur einnig til að mynda úrdú og spænsku, og í einu myndbandinu birti hann brot úr Bollywoodmynd. Raunar var hann af andstæðingum sakaður um að hafa notað gervigreind til að búa til myndband af honum tala spænsku en þau sem unnu að kosningabaráttunni birtu þá myndbrot af honum að æfa sig í spænsku fyrir gerð myndbandsins.

Kosningabarátta Mamdani vakti mikla athygli sem bæði frumleg og skemmtileg og segja margir að nálgun hans geti haft varanleg áhrif á það hvernig kosningabaráttur verða háðar í framtíðinni. Í stað hefðbundinna auglýsinga treysti hann á stutt, áhrifarík og oft húmorísk myndbönd á samfélagsmiðlum eins og TikTok og Instagram. Hann talaði beint til ungs fólks og jaðarsettra hópa með skapandi nálgun þar sem hann blandaði saman pólitík, menningu og húmor.

Eitt vinsælasta myndbandið sýnir Mamdani dýfa sér í sjóinn, í jakkafötum en á tánum, í því skyni að dýfa sér í að skoða nauðsyn þess að frysta leiguverð.

Í öðru myndbandi sést hann sveittur ganga hús úr húsi í sumarhita og segir meðan hann þurrkar sér að hann svitni meira en leigusali sem er að hækka leiguna. 

Með þessu gerði hann flókin málefni aðgengilegri og ádeiluna áhrifaríkari. Mamdani þykir þannig hafa sýnt að það þarf ekki endilega dýrar auglýsingar til að ná til kjósenda heldur skapandi nálgun og raunveruleg tengsl við almenning. 

Lag fyrir ömmu

Hann stóð einnig fyrir kosningaviðburðum í næturklúbbum þar sem tónlist og pólitík runnu saman. Áður en hann fór í pólitík reyndi hann meðal annars fyrir sér sem tónlistarmaður og fyrir sex árum gaf hann, undir listamannsnafninu Mr. Cardamom, út lagið Nani sem hann samdi sem lofsöng um ömmu sína. Í myndbandinu leikur hin goðsagnakennda leikkona og matargúrú Madhur Jaffrey ömmuna. Myndbandið gekk í endurnýjun lífdaga í kosningabaráttunni og fékk gríðarlegt áhorf.

Meðal þess sem skrifað hefur verið um Mamdani í kosningabaráttuni er að aðrir frambjóðendur séu að klást við ýmis hneykslismál úr fortíðinni en á sama tíma hafi Mamdami bara verið að rappa um ömmu sína, og hefur lagið Nani vakið svo mikla gleði og athygli að ýmsir eru, kannski fyrst og fremst í hita leiksins, farnir að kalla eftir því að hann verði næsti forseti. 

Kosningabarátta Mamdani var einnig sérstök að því leyti að hún var fjármögnuð af grasrótinni. Hann hafnaði stórum framlögum frá fyrirtækjum og hagsmunasamtökum og safnaði í staðinn yfir 1,7 milljónum dala, um 240 milljónum króna, frá tæplega átján þúsund einstaklingum sem flestir lögðu fram lítil framlög. Með stuðningi opinbers endurgreiðslukerfis borgarinnar nam heildarfjármögnunin rúmlega 8,7 milljónum dala, sem samsvarar um 1,2 milljörðum króna. Cuomo reiddi sig hins vegar að mestu á stór framlög frá auðmönnum og fyrirtækjum. Grasrótarherferðin endurspeglaði stefnu Mamdani sem snerist um að byggja upp pólitískt afl sem sækir styrk sinn til almennings en ekki fjársterkra hagsmunaafla. 

Þá hefur velgengni Mamdami verið lýst þannig að hann hafi ekki bara staðið í kosningabaráttu heldur leitt nýja hreyfingu; þúsundir sjálfboðaliða tóku þátt í grasrótarstarfi herferðarinnar og byggðu upp hreyfingu sem teygði sig langt út fyrir hefðbundna kosningabaráttu.

„Þú tókst slaginn við pólitíska valdið, efnahagslega valdið og fjölmiðlavaldið - og þú sigraðir“
Bernie Sanders

Mamdani tilkynnti um framboðið í október 2024 og meðal þekktra stuðningsmanna Mamdani eru öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders og þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez.

„Auðmenn og hagsmunahópar helltu milljónum í að ráðast á þig og kerfi opinbers fjármagns. Og þú sigraðir,“ skrifaði Ocasio-Cortez á X eftir sigurinn. Sanders skrifaði: „Þú tókst slaginn við pólitíska valdið, efnahagslega valdið og fjölmiðlavaldið - og þú sigraðir,“ og hvatti hann síðan til árangurs í borgarstjórakosningunum.

Curtis Sliwa, frambjóðandi Repúblikana fyrir borgarstjórnarkosningarnar, sagði Mamdani hins vegar vera „of öfgafullan fyrir borg sem er þegar á ystu nöf“ og Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður í Texas, hvatti New York-búa sem væru „ekki kommúnistar“ að koma til Texas.  Mamdani mætir Sliwa í nóvember sem býður sig þá fram að nýju eftir að hafa tapað fyrir Adams 2021.

Sakaður um andsemítisma

Kjör Mamdanis hefur víðtæka pólitíska þýðingu, bæði í New York og á landsvísu. Það endurspeglar vaxandi áhrif róttæks grasrótararms innan Demókrataflokksins þar sem ungt fólk, innflytjendur og minnihlutahópar - sem saman mynda stóran og sífellt virkari hluta kjósenda í borginni - krefjast kerfisbreytinga, aukins jöfnuðar og umbóta í velferðarmálum, húsnæðismálum og í löggæslu.

Samhliða því hefur Mamdani sætt gagnrýni, bæði innan og utan eigin flokks. Sérstaklega hafa utanríkisáherslur hans vakið deilur. Hann hefur verið áberandi talsmaður réttinda Palestínumanna og opinber stuðningsmaður BDS-hreyfingarinnar, sem hvetur til efnahagslegra og stjórnmálalegra aðgerða gegn Ísrael. Afstaða hans hefur kallað fram ásakanir um andsemítisma, einkum frá íhaldsmönnum og stuðningsmönnum Ísraels, sem telja að slík stefna geri lítið úr áhyggjum gyðingasamfélagsins sem er bæði fjölmennt og áhrifamikið í borginni. Þær áhyggjur beinast meðal annars að því að BDS-hreyfingin grafi undan sjálfsákvörðunarrétti Ísraels og geti ýtt undir hatursorðræðu gegn gyðingum. Mamdani hafnar hins vegar slíkum ásökunum alfarið og segir gagnrýni sína byggða á mannréttindasjónarmiðum.

Að auki hafa bæði hófsamir demókratar og íhaldsmenn gagnrýnt efnahagsáherslur hans sem óraunhæfar og fjárhagslega varhugaverðar. Borgarstjórinn Eric Adams og þingkonan Laura Gillen hafa lýst áhyggjum af því að róttæk stefna Mamdani kunni að fæla atvinnulíf og fjárfesta frá borginni, á sama tíma og kostnaður við hugmyndir hans um víðtæka opinbera þjónustu sé óljós. Þá hefur hann einnig verið gagnrýndur fyrir að skorta skýrar lausnir í öryggismálum borgarbúa, sérstaklega í ljósi þess að glæpatíðni og álitamál tengd aðgerðum og starfsháttum lögreglunnar hafa verið ofarlega í umræðunni í New York að undanförnu.

Það eru fimm mánuðir til borgarstjórnarkosninga og verði Mamdani kjörinn borgarstjóri má ætla að það hafi umtalsverð áhrif, ekki aðeins á stjórnmálalandslagið í New York heldur einnig á þróun innan Demókrataflokksins á landsvísu.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár