Átök Ísraels og Írans stigmagnast: Óvinaveldin nú og þá

Ísrael réðst á Íran með loft­árásum föstu­dag­inn 13. júní og í kjöl­farið hafa ríkin átt í linnu­lausum átökum. Banda­ríski her­inn hefur hafið hern­að­ar­að­gerðir gegn Íran. Leið­togar hafa miklar áhyggjur af því að átökin stig­magn­ist áfram. Heim­ildin tók saman atburði síð­ustu daga og fer yfir sögu óvina­ríkj­anna Ísraels og Írans.

Átök Ísraels og Írans stigmagnast: Óvinaveldin nú og þá
Loft­varn­ar­kerfi Ísraels voru virkjuð til að verj­ast írönskum eld­flaugum yfir borg­inni Tel Aviv í vik­unni. Mynd: Menahem Kahana / AFP

Átök Ísraels og Írans halda áfram og leið­togar í alþjóða­sam­fé­lag­inu hafa áhyggjur af því að þau muni stig­magn­ast á næstu dögum. 

„Þessi maður á alls ekki að halda áfram að vera til,“ sagði varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels, Israel Katz, um æðsta leið­toga Írans, Aya­tollah Ali Khamenei, eftir að Íran gerði árás á spít­ala og íbúð­ar­hús í Tel Aviv.  

Ali Khamenei hefur varað við því að hern­að­ar­í­hlutun Banda­ríkj­anna myndi hafa „óaft­ur­kræfar afleið­ingar.“

Banda­ríski her­inn hefur nú ráð­ist á þrjú kjarn­orku­ver í Íran. Banda­ríkja­for­seti, Donald Trump, sagði í ávarpi í gær að árás­irnar væru „stór­kost­legur hern­að­ar­ár­angur.“ 

Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofnun, IAEA, heldur neyð­ar­fund í dag vegna stöð­unnar.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hvetur til diplómat­ískra leiða.

Heim­ildin tók saman átökin síð­ustu daga og skoð­aði sam­band Ísraels og Írans – sem hefur verið storma­samt í ára­tugi. 

Linnulausar árásir 

Föstu­dag­inn 13. júní réðst Ísrael á Íran í aðgerð titl­aðri Operation Rising Lion. Net­anyahu gaf í skyn að mark­mið Ísraels með árás­unum væri að hindra kjarn­orkuógn sem staf­aði af írönskum stjórn­völdum og bætti við að her­ferð Ísraels gæti einnig leitt til stjórn­ar­skipta. Í árásum Ísraels þennan dag lét­ust hund­ruðir, þar á meðal lyk­il­fólk í íranska hernum og vís­inda­fólk en einnig óbreyttir borg­arar. Mikil eyði­legg­ing varð á hern­að­ar­lega mik­il­vægum innviðum, þar á meðal kjarn­orku­innviðum.   

Í kjöl­farið svar­aði Íran í sömu mynt með árásum á hern­arð­ar­inn­viði Ísraela. Ísrael sagði að flestar sprengj­urnar hefðu ekki náð skot­mörkum sínum en Ísrael er með mjög sterkt varn­ar­kerfi sem er kallað járn­hvelf­ingin eða Iron Dome. 

Á sunnu­dag­inn fyrir viku lýstu Hútar því yfir að þeir hefðu gert árásir á borg­ina Jaffa í Ísrael og voru því fyrstu banda­menn Írans til þess að lýsa yfir þátt­töku í átök­unum.

Sama dag höfðu Íran og Banda­ríkin áætlað samn­inga­við­ræður um kjarn­orku en írönsk yfir­völd hættu við samn­inga­við­ræð­urnar og sögð­ust ekki geta sinnt þeim á meðan á árás­unum stæði.

Á mánu­dag greindi ríkin tvö á um það hversu mikið af flaugum Írans hafa kom­ist í gegnum Ísra­elska varn­ar­kerfið. Íran sagð­ist hafa náð flestum skot­mörkum sínum en Ísrael sagði að ein­ungis sjö af hund­rað flaugum hefði kom­ist í gegnum varn­ar­kerfi rík­is­ins. Íran sagði einnig frá því að það hefði hand­tekið fjölda ísra­elska njó­sn­ara. 

Á þriðju­dag greindi Ísrael frá því að ísra­els­her hefði ráðið yfir­mann her­sveita Írans af dögum, Ali Shadmani, en hann hafði gengt emb­ætt­inu í fjóra daga. 

Á mið­viku­dag greindu mann­rétt­inda­sam­tök í Íran frá því að loft­árásir Ísrael hefðu kostað að minnsta kosti 585 manns lífið og sært 1.326. Íranir hafa ekki upp­fært tölur lát­inna síðan á mánu­dag­inn en þá höfðu 224 verið drepnir.  Samkvæmt íranska rík­inu er tala lát­inna sem kom út í gær um 430 og eru 3.500 særð.

Á laug­ar­dag réðst Banda­ríkja­her á kjarn­orku­inn­viði Írana. Íranir svör­uðu fyrir sig með árásum á Ísrael.

Átökin halda áfram og virð­ast vera að stig­magn­ast. Leið­togar út um allan heim hafa hvatt til diplómat­ískra lausna. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, var í við­tali í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 föstu­dags­morgun þar sem hún brýndi að Ísraelar færu að alþjóða­lögum en sagði að Íranir valdi einna mestu óör­yggi á Mið-Aust­ur­löndum. Hún hvetur til diplómat­ískra leiða svo að átöknum linni. 

Diplómatík vék fyrir hervaldi

Donald Trump sagð­ist ætla að verja tveimur vikum í diplómat­ískar aðgerðir gegn Íran áður en að Banda­ríkin mundu hefja árásir á ríkið. Öflugar her­sveitir í Írak sem eru studdar af Íran hafa lýst því yfir að þær muni ráð­ast á banda­rísk her­svæði ef að Banda­ríkin ætli sér að taka þátt í átök­unum.

Annar tónn hefur nú verið kveð­inn og hefur Banda­ríkja­her ráð­ist á kjarn­orku­verin Fordow, Natanz og Isfahan í Íran. Í gær sagði Trump að aðgerð­irnar hefðu verið „stór­kost­legur hern­að­ar­ár­angur.“ Einnig kall­aði hann Íran „ein­elt­is­s­egg Mið-Aust­ur­landa“ og sagði ríkið þurfa að efna til friðar. Hótaði Trump frek­ari árásum ef Íran myndi ekki gef­ast upp. 

Banda­ríkin eru dyggur stuðn­ings­maður Ísrael í deil­unum en Trump hefur sagt að leið­togi Írans, Ali Khamenei, yrði „auð­velt skot­mark“ fyrir banda­ríska her­menn. Í yfir­lýs­ingu á Truth Social sagði for­set­inn: „Við ætlum ekki að taka hann út (drepa hann!), alla­vega ekki í bili ... Þol­in­mæði okkar er á þrotum.“ Umræðan vest­an­hafs hefur ekki ein­ungis snú­ist um það að koma í veg fyrir kjarn­orku­á­ætlun Írana heldur í raun að breyta stjórn­ar­háttum þar í landi.

Trump hefur einnig lýst því yfir að Íran megi ekki eign­ast kjarn­orku­vopn og tekur undir yfir­lýs­ingar Net­anyahu um að árás­irnar 13. júní hafi verið fyr­ir­byggj­andi aðgerðir til þess að koma í veg fyrir kjarn­orku­vopna­smíði Írana. 

Banda­ríkin hafa lengi haft mikil ítök á Mið-Aust­ur­löndum og átt í storma­sömu sam­bandi við Íran. Hér verður farið stutt­lega yfir sögu. Árið 1953 aðstoð­uðu banda­ríska og breska leyni­þjón­ustan við valda­rán í Íran og steyptu for­sæt­is­ráð­herra rík­is­ins, Mohammed Mossadeq, af stóli. Í kjöl­farið tók við keis­ara­stjórn Mohammad Reza Pahlavi. Stjórnin reiddi sig á stuðn­ing Banda­ríkj­anna en hann var óvin­sæll á meðal almenn­ings í Íran. Honum var steypt af stóli árið 1979 í írönsku bylt­ing­unni. Í kjöl­farið tók við íslömsk klerka­stjórn undir hand­leiðslu Aya­tollah Khomeini en klerka­stjórnin hefur verið við lýði allar götur síðan. 

Sama ár og klerka­stjórnin tók við héldu íranskir stúd­entar starfs­fólk banda­rísk sendi­ráðs­ins í Teheran í gísl­ingu og var síð­ustu gísl­unum ekki sleppt fyrr en 444 dögum síðar. Á þessum tíma höfðu Banda­ríkin ekki viljað fram­selja Pahlavi til Írans og ótt­uð­ust mörg þar í landi að Banda­ríkin væru að skipu­leggja nýtt valda­rán. Sagt hefur verið að gísla­takan styrkti stöðu klerka­veld­is­ins. Banda­ríkin og Íran hafa síðan þá ein­ungis átt í óvina­sam­bandi.

Kjarnorkuáætlanir á Mið-Austurlöndum

Íranir hafa ekki geng­ist við því að þeir séu að þróa kjarn­orku­vopn en Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­unin eða IAEA –  sem fylgist með ríkjum sem sam­þykkt hafa samn­ing um að dreifa ekki kjarna­vopnum – hefur haft efa­semdir um áætl­anir Írans. IAEA fylgist ein­ungis með ríkjum sem hafa skrifað undir samn­ing­inn. Ísrael er ekki þar á meðal og því er ekk­ert eft­ir­lit með kjarna­vopnum rík­is­ins. 

For­stjóri IAEA, Rafael Grossi, sagði á fimmtu­dag að sönn­un­ar­gögn sem hefði verið safnað um kjarn­orku­á­ætlun Írans gæti „varla verið grund­völlur fyrir hern­að­ar­að­gerðum.“ Hann vísar þá til þess að Ísrael hafi í kjöl­far fyrstu loft­árása sinna á Íran bent á nýlega skýrslu IAEA. Hún greindi frá því að Íran auðgi úran í meira magn en önnur lönd án kjarn­orku­vopna­á­ætl­ana. Slíkt brýtur gegn samn­ingi um að dreifa ekki kjarna­vopnum. Enn fremur sagði Gross að ekki væru merki um „kerf­is­bundna áætlun í Íran til að fram­leiða kjarn­orku­vopn.“

David Ben Gurion, fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Ísrael kom á lagg­irnar þróun kjarn­orku­vopna í Ísrael um miðjan sjötta ára­tug­inn. Hlaut áætl­unin aðstoðar franskra yfir­valda. Mikil leynd hefur verið síð­ast­liðna ára­tugi um kjarn­orku­vopna­á­ætlun Ísraela og í raun hafa Ísraelar aldrei stað­fest eða neitað því að eiga kjarn­orku­vopn. Í við­tali árið 2011 var Net­anyahu spurður hvort hann gæti stað­fest að Ísrael ætti ekki kjarn­orku­vopn. Hann svar­aði: „Það er stefna okkar. Að vera ekki fyrst til að koma kjarn­orku­vopnum fyrir á Mið-Aust­ur­löndum.“

Ísrael og Íran lengi átt í erjum

Ísrael og Íran hafa staðið í illum deilum í ára­tugi sem má rekja til íslömsku bylt­ing­unar árið 1979. Eftir að íslamska klerka­stjórnin tók í stjórn­ar­taumana hafa ríkin slitið öllum diplómat­ískum tengslum. Íranska ríkið við­ur­kennir ekki til­veru­rétt Ísraels og segir Palest­ínu eina lög­mæta valdið á svæð­inu. 

Árið 1982 réðst Ísrael á Líbanon. Í kjöl­farið aðstoð­uðu Íranir við að koma víga­sam­tök­unum Hezbollah á fót og lán­uðu víga­sam­tök­unum fjár­magn og veittu her­þjálfun. Írönsk yfir­völd hafa einnig fjár­magnað Hamas á Gasa­svæð­inu, sveitir Húta í Jemen og ann­arra víga­hópa í Írak og á Sýrlandi, sam­kvæmt banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Eftir að Ísrael hóf árásir á Gasa í októ­ber 2023, hefur ísra­elski her­inn drepið stóran hluta af æðstu stjórn­endum sam­tak­anna, jafn­framt því að ráð­ast á Hezbollah og á skot­mörk Húta. 

Í apríl 2024 gerði Ísrael árás á Íran og í kjöl­farið urðu átök ríkj­anna á milli en þeim lauk í októ­ber síð­ast­lið­inn. Árásir hófust aftur núna 13. júní eins og áður segir.

Árásir áfram á Gasa

Ísrael hefur haldið áfram með árásir sínar á Gasa eftir að átökin við Íran hófust. Hund­ruðir Palest­ínu­manna hafa verið drepnir und­an­farna daga, þar á meðal tugir sem leit­uðu aðstoðar. Fjöl­skyldur urðu fyrir sprengjum í flótta­manna­tjöldum.

Einnig hefur Ísrael sakað Íran um stríðs­glæpi eftir að írönskum eld­flaugum var skotið á sjúkra­hús í suð­ur­hluta Ísraels. Í Gasa hefur ísra­elski her­inn eyði­lagt nán­ast öll sjúkra­húsin á svæð­inu. Ísraelsk árás skemmdi spít­ala í Íran á mið­viku­dag. 

Ísland styður ekki kjarnorkuvopnabann

Árið 2017 sam­þykktu 122 aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna að banna meðal ann­ars notkun, hót­anir um notkun, þróun, fram­leiðslu, eign­ar­hald og birgða­söfnun kjarn­orku­vopna. Samn­ingur heitir Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um bann við kjarn­orku­vopnum og hafa nú 94 ríki skrifað undir og 73 þeirra hafa full­gilt hann. Einungis tvö ríki í Evrópu hafa und­ir­ritað og full­gilt samn­ing­inn: Írland og Aust­ur­ríki.

Þannig hefur Ísland ekki und­ir­ritað samn­ing­inn. Á vef The International Campaign to Abolish Nuclear Weapons – stofn­unar sem hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2017 – er Ísland skráð sem Kjarn­orku­vopna-stuðn­ings­að­ili. Ástæða Íslands fyrir því að skrifa ekki undir samn­ing­inn hefur hingað til verið byggð á því að ríkið sé skuld­bundið NATO. Í könnun frá árinu 2021 á vegum YouGov kom fram að 86 pró­sent Íslend­inga væru hlynntir því að Ísland skrif­aði undir samn­ing­inn.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár