Gunnar Smári úti í kuldanum

Nið­ur­stöð­ur síð­ustu al­þing­is­kosn­inga voru Sósí­al­ista­flokki Ís­lands gríð­ar­leg von­brigði og kall­að var eft­ir upp­gjöri. Hall­ar­bylt­ing varð á að­al­fundi flokks­ins þar sem full­trú­ar ósáttr­ar grasrót­ar náðu völd­um. Eft­ir stend­ur að for­seti borg­ar­stjórn­ar Reykja­vík­ur og flokk­ur henn­ar ganga ekki í takt.

Gunnar Smári úti í kuldanum
Sniðgenginn Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, var sniðgenginn í kosningu í framkvæmdastjórn flokksins á aðalfundinum sem fram fór í húsnæði flokksins í Bolholti. Mynd: Golli

Átta ár eru liðin síðan Gunnar Smári Egilsson birti eftirfarandi ákall á Facebook-síðu sinni: „Þeir sem vilja gerast stofnfélagar að Sósíalistaflokki Íslands, sem formlega verður stofnaður 1. maí næstkomandi, geta skráð sig hér. Sósíalistar allra landa sameinist!“ Þetta var í apríl 2017, viku eftir að hann hætti afskiptum af Fréttatímanum sem fór í þrot.

Gunnar Smári deildi með hvatningunni tengli á skráningarsíðu flokksins með samsettri mynd af fimmtán manneskjum. Þar var neðst í hægra horninu mynd af ungri konu sem var þá að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum en er í dag forseti borgarstjórnar: Sanna Magdalena Mörtudóttir.

Miklar sviptingar

Ljóst var fyrir fram að aðalfundur Sósíalistaflokksins, sem haldinn var liðna helgi, yrði mikill hitafundur. Gríðarlegar sviptingar urðu þar á stjórn flokksins þar sem hópur fólks úr grasrótinni bauð sig fram til höfuðs þeim sem höfðu farið með völd í flokknum …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu