Eftir að hafa galdrað fram þúsundir blaðsíðna um glæpi, dulræna atburði og ráðgátur sem leysast, situr þetta rólyndis fólk hér saman, þrjár konur og einn karl, og reynir að svara spurningunni: Hver er hinn fullkomni glæpur?
Yrsa: „Ætli það væri ekki glæpur sem enginn veit að hefur verið framinn?“
Lilja: „Það er er náttúrlega glæpur sem viðkomandi kemst upp með.“
Satu: „Það er þegar viðkomandi fremur ekki glæpinn fyrir sjálfan sig heldur vegna réttlætis.“
Lilja: „Ef rithöfundurinn ætlast til að lesandinn standi með glæpamanninum þá verður að vera góð ástæða fyrir glæpnum.“
Satu: „Í bók skiptir máli að fá lesandann með. Fremja ekki glæp, bara vegna þess að það er svo gaman að drepa fólk. Morðinginn er að fremja glæp út af einhverju og lesandinn skilur af hverju.“
Ragnar: „Hann er bara á blaði. Það er nóg af hræðilegum hlutum í heiminum.“
Hvað þarf að hafa í huga?
Margt …
Athugasemdir