Hinn ósjálfbæri forseti: Hundrað dagar með Trump aftur í embætti

Frá því að Donald Trump tók við völdum hefur verið grafið undan rétt­ar­rík­inu, alþjóða­ör­ygg­is­málum og borg­ara­rétt­indum. Nú hefur hann einnig skapað efna­hags­legan vanda, vegið að vís­inda­starfi og akademísku frelsi.

Hinn ósjálfbæri forseti: Hundrað dagar með Trump aftur í embætti

Það eru nokkrar grund­vall­ar­stofn­anir sem þarf til þess að land geti verið sjálf­stætt þjóð­ríki og þar blómstrað sam­fé­lag. Þetta þekkjum við Íslend­ingar, sem á rétt rúmum hund­rað árum höfum byggt upp það sem þarf. Til dæmis: þjóð­skjala­safn, þjóð­minja­safn, þjóð­leik­hús, lista­safn, lög­gjaf­ar­þing, land­spít­ala, gjald­miðil, seðla­banka, hæsta­rétt og háskóla.

Sjaldan í sög­unni höfum við séð þjóð­kjör­inn leið­toga brjóta niður eins opin­ber­lega þær stofn­anir sem þarf til að sam­fé­lagið virki – eins og við horfum upp á nú und­an­farna hund­rað daga hjá nágrönnum okkar í vestri. Vissu­lega hafa þjóð­ríki verið brotin niður, í stríðs­á­tökum helst – eins og við sjáum jafn­vel enn þann dag í dag í beinni sjón­varps­út­send­ingu úr austri þar sem allir háskólar og spít­alar í einu landi eru sprengdir í loft upp af óvinum sem ætla sér að útrýma heilli þjóð. 

Það hafa líka verið til brjál­aðir ein­valdar sem leitt hafa þjóðir sínar til ein­hvers konar glöt­unar. En þar hefur …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár