Langvarandi átök milljarðamæringa hafa áhrif á allt samfélagið

Átökum þeirra Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og Róberts Wessman hefur verið líkt við leðjuslag, þar sem ekk­ert er heil­agt. Í þessum átökum hefur Björgólfur meðal ann­ars staðið að leyni­legri fjár­mögnun fjöl­miðla og njósnum, með aðstoð lög­reglu.

Langvarandi átök milljarðamæringa hafa áhrif á allt samfélagið

Njósn­a­mál fyr­ir­tæk­is­ins PPP, sem hafði eft­ir­lit með fjölda fólks fyrir atbeina auð­kýf­ings­ins Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, á sér rúm­lega tveggja ára­tuga aðdrag­anda. Inn í málið bland­ast annar millj­arða­mær­ingur, Róbert Wessman, fjand­sam­legar yfir­tökur, lyfja­fyr­ir­tækið Actavis, all­nokkrir fjöl­miðlar, furðu­legar skærur og að lokum fjöldi einka­mála þar sem auð­kýf­ing­arnir stefndu hvor öðrum á víxl. Deilur Róberts og Björg­ólfs rista djúpt og eru upp­nefndar leðju­slagur millj­arða­mær­ing­anna í sam­tölum við þá sem til þekkja og ræddu við Heim­ild­ina. Fjöl­miðla­lands­lag á Íslandi hefur gjör­breyst vegna þess­ara erja og nú fylgist þjóðin með andaktug eftir að RÚV greindi frá umfangs­miklum njósn­a­að­gerðum, sem lög­reglu­þjónn er sagður hafa tekið þátt í og hefur verið vikið frá störfum. Peðin eru fallin, en kóng­arnir sæta færis í þess­ari klaufa­legu ref­skák, sem hefur staðið yfir um ára­bil og er nú á for­síðum flestra fjöl­miðla.

Upplifði blekkingar

Róbert Wessman varð for­stjóri lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Delta …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Róbert var með mafíuna á leigu líka eftir hrun
    0
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Þetta er eins og tekið upp úr 3. kafla 2. Tímóteusarbréfs, fyrstu 6 versin. Lesið það.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár