Hljóp á þremur meðgöngum

Sumar hlaupa­konur ákveða að halda áfram að hlaupa eftir að þær verða ófrískar. Nauð­syn­legt er að fara eftir ráð­legg­ingum lækna um hvað megi gera og hversu mikið. Gréta Rut Bjarna­dóttir hefur gengið með fjögur börn og hljóp á flestum með­göngum. Hún talar um hvað hún leyfði sér og einnig hvernig hún kom sér af stað aftur eftir fæð­ingu.

Hljóp á þremur meðgöngum
Fagnað við markið Gréta Rut fær góðar mót­tökur eftir keppn­is­hlaup.

Gréta Rut Bjarna­dóttir var mikið í fót­bolta þegar hún var yngri, en fannst hún þurfa að vera í ein­hverju öðru. Hún seg­ist ekki hafa fundið sig í Crossfit eða að vera ein í rækt­inni. Svo stakk faðir hennar upp á því að hún færi að hlaupa. Hann hafði þá hlaupið Lauga­veg­inn tvisvar eða þrisvar sinnum og ákvað Gréta Rut að feta í fót­spor hans.

„Þá byrj­aði ég að fá þessa hlaupa­bakt­eríu. Hann í raun­inni kom mér í þetta.“

Gréta Rut var búin að vera að hlaupa í um níu mán­uði þegar hún fór í fyrsta Lauga­vegs­hlaupið árið 2015. „Ég fékk utan­vega­bakt­eríu í gegnum pabba minn. Þannig byrj­aði þetta. Ég er meira að keppa í utan­vega­hlaupum heldur en á götu og er búin að fara Lauga­veg­inn fjórum sinnum. Besti tím­inn minn þar er 6:01. Það væri gaman að ná undir sex í ár en maður á eftir að sjá hvernig það gengur.“

Gréta Rut hefur oft verið í verð­launa­sætum á hlaupa­ferl­inum. „Það er ótrú­lega fyndið að sum­arið 2023 lenti ég alltaf í fjórða sæti. Það voru ein­hver álög á mér. Ég var í fjórða sæti í ald­urs­flokknum á Lauga­veg­inum, í Hólms­heið­ar­hlaup­inu og Eld­s­lóð­inni. Þegar ég var yngri lenti ég einu sinni í ald­urs­flokknum í öðru sæti á Lauga­veg­inum. Svo hafa verið nokkrar barn­eign­ar­pásur þannig að maður er alltaf að koma sér aftur af stað í þessu.“

„Líkaminn er ótrú­legt fyr­ir­bæri og lætur mann alveg vita ef þetta verður of mikið. Maður á alltaf að hlusta á lík­ama sinn.“

Hlaupið á meðgöngu

Gréta Rut hefur gengið með fjögur börn og hefur hlaupið í nokkra mán­uði á þremur þeirra. 

Það er mik­il­vægt að konur leiti ráða hjá læknum upp á hvort óhætt sé að hlaupa. Gréta Rún segir að þeir læknar og ljós­mæður sem hún hafi talað við hafi sagt að hún ætti að gera það sem hún væri vön svo lengi sem henni liði vel. „Líkaminn er ótrú­legt fyr­ir­bæri og lætur mann alveg vita ef þetta verður of mikið. Maður á alltaf að hlusta á lík­ama sinn.“

Hún seg­ist hafa hlaupið fram að 20. viku á fyrstu með­göng­unni. „Mér fannst ég verða að gera eitt­hvað annan hvern dag; ég var ekki mikið að stressa mig á að ég yrði að hlaupa þrisvar eða fjórum sinnum í viku. Stundum gerði ég eitt­hvað þrjá daga í röð. Ég var samt ákveðin í að hvíla ekki tvo daga í röð af því að þá hefði ég alveg dottið í „comfort zone“, alla­vega er ég þannig mann­eskja. Mér fannst rosa fínt að vera með regl­una „annan hvern dag“. Og ég mið­aði oft við tíma frekar en kíló­metra,“ segir hún.

Á fyrstu með­göngu Grétu greind­ist vaxt­ar­skerð­ing og ákvað hún að hægja alveg á sér. „Það kom svo í ljós í tutt­ugu vikna sónar að hann var vaxt­ar­skertur og þá hætti ég að hlaupa.“

Gréta Rut fæddi svo and­vana son sinn á 29. viku.

Upplifði ótta eftir missinn

Hún varð svo aftur ófrísk og lifði um tíma við ótta.

„Ég þorði ekki að hreyfa mig af því að ég hélt að ég myndi valda ein­hverjum skaða. Ég var svo stressuð á þeirri með­göngu og mér leið ótrú­lega illa. Mér leið and­lega og lík­am­lega mjög illa. Ég var á mjög vondum stað. Ég hugs­aði ekki rök­rétt og bjó til alls konar atburða­rás í hausnum sem gerði mig svo hrædda. En ég fór samt í göngut­úra. Mér finnst gaman að eyða orkunni minni í hreyf­ingu,“ segir hún.

„Ég hugs­aði ekki rök­rétt og bjó til alls konar atburða­rás í hausnum sem gerði mig svo hrædda

Hún hélt áfram að gera það sem veitti henni vellíðan.

„Ég sótti enn þá meira í hlaupin eftir miss­inn. Þetta er líka svo mikil hug­leiðsla. Mér finnst skemmti­legra að vera úti í nátt­úr­unni. Maður fær svo ótrú­lega mikla vellíðan út úr því. Mér finnst gaman að taka gæða­æf­ingar,“ segir hún en þá er átt við að hlaupið sé á meiri hraða en í rólegum og milli­ró­legum hlaupum, „en ég fæ bara svo ótrú­lega mikið út úr því að hlaupa úti í nátt­úr­unni og ég kem til baka svo sjúk­lega orku­meiri þegar maður er einmitt búinn að fara utan­vega. Ég held að þess vegna sæki ég í utan­vega­hlaup. Þetta snýst alls ekki alltaf um tíma hjá mér heldur að gleyma sér. Ég held að það sé erf­ið­ara að gleyma sér ef verið er að hlaupa beinan mal­bik­aðan kafla frekar en að vera í ótrú­lega fal­legri nátt­úru. Þess vegna held ég að ég sæki í utan­vega­hlaupin.“

Í Hólms­heið­ar­hlaup­inuReyndi að hreyfa sig annan hvern dag á fyrri hluta ólétt­unnar.

Ólétt á verðlaunapalli

Gréta Rut varð svo óvænt ófrísk þriðja sinnið. Hún keppti í Tinda­hlaup­inu árið 2021 og lenti í öðru sæti og var þá komin rúmar sjö vikur á leið án þess að vita það. Hún hélt áfram að hlaupa eftir að hún vissi að hún væri ófrísk fljót­lega eftir hlaupið og tók fyrir viku í einu. „Ég var ekk­ert að hugsa langt fram í tím­ann.“

Gréta Rut segir að fyrstu vik­urnar á þriðju með­göng­unni hafi gengið mjög vel; hún fann ekki fyrir miklum flök­ur­leika og var ekki mjög þreytt. „Ég náði sem betur fer að halda hlaup­unum svo­lítið vel inni; ég hljóp og gekk til skiptis. Ef manni líður vel í hlaup­inu og dag­inn eftir hlaup þá er allt í góðu. Ég tók út allar erf­iðar æfingar og hlust­aði á lík­amann. Ég gekk líka upp á Helga­fell, Úlf­ars­fell og upp að Steini. Það er svo mik­ill styrkur í þessum brekkum. Ég verð orku­meiri þegar ég hreyfi mig. Það er mjög eðli­legt að það komi tímar sem maður er þreyttur en ég hef sótt mér orku með því að hreyfa mig.“

Hún náði að hlaupa fram að þrí­tug­ustu viku á þriðju með­göng­unni og hljóp stundum fimm til átta kíló­metra. „Lengsta hlaupið sem ég hef hlaupið ófrísk var í kringum átján til tutt­ugu kíló­metrar en það var á fjórt­ándu eða sext­ándu viku. Svo sner­ist þetta meira um að fara út í hálf­tíma til klukku­tíma og þegar á með­göng­una leið var þetta kannski komið niður í þrjá kíló­metra. Margir pæla mikið í kíló­metra­fjöld­anum en maður verður að bera virð­ingu fyrir lík­am­anum sínum og þó maður geti „bara“ farið þrjá kíló­metra í lokin þá er það samt gott fyrir mann.“

Svo var von á fjórða barn­inu í fyrra og náði hún að hlaupa fram að 25. viku. „Þá var ég með stærri og meiri kúlu og var komin með tog­verki í lið­bönd; ég fékk verki fyrr. Ég myndi samt alltaf mæla með að gera eitt­hvað annan hvern dag – hlaupa og labba til skiptis. Það er enda­laust af fjöllum til dæmis í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og það að ganga er svo góð styrkta­ræf­ing fyrir grind og læri en það gerði mikið fyrir mig að fara í fjall­göngur þegar ég gat ekki hlaupið. Ef ég átti slæman dag, var mjög þreytt eða illa sofin, þá fór ég kannski að hjóla í hálf­tíma. Maður þarf nátt­úr­lega algjör­lega að hlusta á lík­ama sinn og reyna að vera með þessa rútínu.“

„Ég skil að með­göngur eru mis­jafnar og ég hef heyrt hryll­ings­sögur

Gréta Rut seg­ist hafa gengið rólega upp á Úlf­ars­fellið viku áður en hún fæddi yngsta barnið. 

„Maður er bara að auka blóð­flæði í lík­am­anum. Það fara alls konar gleði­hormón í gang og það gefur manni svo ótrú­lega mikið að fara út og fá súr­efni og aðeins auka hjart­slátt­inn. Þetta gerir manni bara gott, and­lega og lík­am­lega. Ég skil að með­göngur eru mis­jafnar og ég hef heyrt hryll­ings­sögur. En það skiptir máli að vera með þokka­lega heilsu. Ég hugs­aði ekki með mér að ég þyrfti að hreyfa mig sjúk­lega alla daga en ég ákvað að ég skyldi gera eitt­hvað annan hvern dag. Ég fór til dæmis líka í sund og hjólaði. Ég hreyfði mig en þá er maður miklu sneggri að koma sér í stand aftur eftir fæð­ingu.“

Með manni sínum og börnum„Ég tengi oft saman hlaup og að ganga með og fæða barn þótt verð­launin séu ekki þau sömu,“ segir Gréta, en börnin hennar eiga þó til að mæta henni hinum megin við marklín­una.

 Í góðu formi í fæðingu

Það er gott ef kona er í góðu lík­am­legu formi þegar kemur að fæð­ing­unni og seg­ist Gréta Rut halda að það hvað fæð­ing­arnar gengu vel teng­ist því. „Það getur ýmis­legt komið upp á í fæð­ingum og ég vil ekki alhæfa neitt en ég trúi ekki öðru en að hreyf­ingin hafi góð áhrif. Það er alvöru „mission“ að fæða barn og ég var alla­vega mjög þakk­lát fyrir að vera í þokka­legu standi. Ég held að það geri bara gott fyrir mann að vera með sterk lungu og vera kraft­mikil, sama hvaða íþrótt maður stundar. Það má líkja fæð­ingu við íþrótta­keppni; ég upp­lifi það þannig. Maður gengur með barnið og það er erfitt í lokin, alla­vega hjá mér, og svo kemur fæð­ingin sem tekur á og svo er barnið fætt og maður er smá „úff, hvað var ég að gera?“ en svo er maður kom­inn með barnið í fangið og þá er þetta svo þess virði. Ég tengi oft saman hlaup og að ganga með og fæða barn þótt verð­launin séu ekki þau sömu.“ 

Hlaup eftir fæð­inguGréta Rut segir að hún hafi byrjað að hlaupa á gervi­gras­velli þegar hún fór að hlaupa aftur eftir fæð­ingu.

Hænuskref

Gréta Rut nefnir að talað sé um að konur eigi að fara mjög var­lega og gera lítið sex vikum eftir fæð­ingu. 

„Ég held að það sé ótrú­lega mik­il­vægt að minna sig á að það þekkir eng­inn lík­ama sinn betur en maður sjálfur. Ég hef alltaf verið með það hug­ar­far en ekki að ég verði strax að hlaupa. Ég geri þetta í hænu­skrefum. Og það er allt í lagi að byrja aðeins fyrr í þessum hænu­skrefum og fara út í göngut­úra og labba brekkur; þetta eru allt styrkta­ræf­ingar. Það er betra en að gera ekki neitt í sex vikur og fara svo út að hlaupa fjóra til fimm kíló­metra. Ég hef alltaf verið með það mark­mið að taka þetta í minni skrefum en þá byrja ég kannski tveimur til þremur vikum eftir fæð­ingu og fer aðeins út í göngutúr. Það er hægt að fara út annan hvern dag í tíu mín­útur eða tutt­ugu mín­útur í stað þess að hlaupa þrjá kíló­metra annan hvern dag. Þetta snýst meira um að fara út og byrja að ganga og prufa síðan að hlaupa nokkur skref og gera þetta í algjörum hænu­skrefum. Það er það sem ég hef verið að vinna með.“

Hún talar ekki bara um göngut­úra heldur líka kraft­göngur og segir að það sé ótrú­lega mik­ill styrkur sem hún hafi fengið út úr þeim. „Þá var maður nátt­úr­lega að koma hlaupa­hreyf­ing­unni líka inn í lík­amann með því að fara í kraft­göngur og ganga upp brekkur. Þannig að maður getur gert margt áður en maður fer í hlaupa­ferð. Það er hægt að gera ótrú­lega hluti áður en maður dettur í þann pakka.“

Hlabb

Gréta Rut segir að hún hafi byrjað að hlaupa á gervi­gras­velli þegar hún fór að hlaupa aftur eftir fæð­ingu og að það sé gott að byrja að hlaupa aftur þannig. „Það getur verið ójafnt und­ir­lag utan­vega og þess vegna kýs ég gervi­gras.“

Hún seg­ist halda að margar nýbak­aðar mæður séu hræddar við æfingar sem hún seg­ist skilja. „Það er eng­inn skaði skeður þótt maður finni smá eymsli hér og þar en þá veit maður frekar að þar eru mörkin. Ég hef farið í göngut­úra tíu dögum eftir að ég hef fætt en það er eðli­legt að fá harð­sperrur og maður er nátt­úr­lega að vekja alls konar vöðva og bein sem hafa verið í dvala. Maður á að vera ófeim­inn við þetta. Ég hef byrjað að hlaupa nokkur skref um fimm vikum eftir fæð­ingu. Ég hef aldrei mark­visst farið út að hlaupa fjóra kíló­metra. Kannski hef ég gengið í kringum Rauða­vatn og ákveðið að prófa að skokka fimm­tíu metra og svo kannski hund­rað metra. Maður kallar þetta hlabb, að hlaupa og labba til skiptis. Það er gott að byrja þannig.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár