Icelandair sýknað af kröfu Margrétar – Stærsti hluti bótakröfu vegna Netflix

Margrét Frið­riks­dóttir krafð­ist yfir 24 millj­óna króna í bætur eftir að henni var vísað brott úr vél Icelandair árið 2022. Hún hafði þá neitað að taska sem hún hafði með­ferðis yrði færð í far­þega­rými og neitað að setja upp grímu vegna sótt­varna. Stærsti hluti af bóta­kröf­unnar var vegna heim­ilda­myndar sem Margrét hugð­ist gera og selja Netflix.

Icelandair sýknað af kröfu Margrétar – Stærsti hluti bótakröfu vegna Netflix

Icelandair hefur verið sýknað af rúm­lega 24 millj­óna króna bóta­kröfu Mar­grétar Frið­riks­dóttur, rit­stjóra fjöl­mið­ils­ins Fréttin.is, í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þá er Margréti gert að greiða flug­fé­lag­inu 1,5 milljón króna í máls­kostnað. 

Tildrög mála­ferl­anna má rekja til sept­em­ber 2022 þegar Margrét átti bókað flug með Icelandair til Þýska­lands. Þegar hún hugð­ist ganga um borð í vél­ina var henni gert að skilja hand­far­ang­urstösku sína eftir og flug­vall­ar­starfs­menn tóku ákvörðun um að taskan skyldi færð í far­ang­urs­rými vél­ar­innar, sem Margrét var mjög ósátt við.

Þegar inn í flug­vél­ina var komið var Margréti gert að setja upp grímu, sem hún var einnig mjög ósátt við, auk þess sem hún taldi þá að vel mætti koma hand­far­ang­urstösku sinni fyrir innan far­þega­rýmis. Af þessu reis ágrein­ingur milli Mar­grétar og áhafnar vél­ar­innar sem lauk þannig að lög­regla var kölluð til sem fylgdi henni frá borði. 

Ágrein­ingur Mar­grétar og Icelandair lýtur að því hvort heim­ilt hafi verið að vísa henni frá borði en hún telur svo ekki vera og að með því hafi Icelandair bakað henni umfangs­mikið fjár­hags­legt tjón og sömu­leiðis valdið henni miska. 

Eftir milli­lend­ingu í Þýska­landi hafði hún áætlað að fljúga til Moskvu og fara þaðan til her­set­inna svæða í Úkraínu, meðal ann­ars til að taka upp efni fyrir heim­ilda­mynd.

Heimildarmynd og ærumeiðingar

Í sund­ur­lið­aðri bóta­kröfu sem Margrét lagði fram telur hún meðal ann­ars upp 550 þús­und krónur vegna ónýtts far­miða, rúma milljón vegna auk­ins launa­kostn­aðar, rúma milljón vegna útlagðs hót­el­kostn­aðar og rúmar 14 millj­ónir vegna „eyði­lagðrar  heim­ilda­myndar.“ 

Til­greind fjár­hæð tekur mið af lág­marks­verð­lagn­ingu Netflix vegna kaupa fyr­ir­tæk­is­ins á heim­ild­ar­myndum en Margrét hafði í hyggju að selja sýn­ing­ar­rétt mynd­ar­innar þangað. Í kröfu­gerð­inni segir: „Ljóst er að um ein­stakt myndefni í sér­flokki hefði verið að ræða þar sem eng­inn í heim­inum hefur náð þeirri aðstöðu líkt og stefn­andi að geta unnið heim­ild­ar­mynd um stríðið í Úkraínu með því að kom­ast á þau svæði þar sem barist var á þessum tíma. Sjá „How much does Netflix [pay] for Documentaries“ – verð­bil frá 15.000.000 króna – 300.000.000 króna“

Einnig krafð­ist Margrét bóta vegna ólög­mætrar æru­meið­ingar með brott­vís­un­inn í við­ur­vist fjölda far­þega, sem og ólög­mætra fyr­ir­mæla um ands­lits­grímu­burð, alls 3 millj­óna króna. Einnig krafð­ist hún tveggja millj­óna króna í bætur vegna þján­ingar og læknis­kostn­aðar. 

Neysla áfengis og ógn við flugöryggi

Í mála­til­bún­aði Icelandair kemur fram að óum­deilt sé að flug­stjóri hafi heim­ild til að neita far­þegum eða far­angri, með vísan í lög um loft­ferðir. Þá er bent á ákvæði um að mælt sé fyrir um það mark­mið flug­stjóra að stefna að því að við­halda góðri hegðun og reglu í loft­fari, og skyldu far­þega til að hlíta fyr­ir­mælum flug­stjóra og ann­arra í áhöfn­inni. Telur Icelandair að hegðun hennar, þar sem Margrét neit­aði að hlýða fyr­ir­mælum, hafi verið þess eðlis að það gæti ógnað flug­ör­yggi ef henni hefði verið heim­ilt að fara með vél­inni. 

Icelandair vísar einnig til þess að með miða­kaup­unum hafi Margrét sam­þykkt skil­mála flug­fé­lags­ins en þar kemur til að mynda fram um að heim­ilt er „að neita far­þegum um far í til­fellum þegar far­þegi er í ann­ar­legu ástandi vegna neyslu áfengis og/eða lyfja, far­þegi hefur hegðað sér með ófor­svar­an­legum hætti áður, far­þegi hlítir ekki fyr­ir­mælum flug­rek­anda og starfs­manna hans eða far­þegi ógnar, eða getur ógnað, öruggri starf­rækslu flugs.“

Hvað bóta­kröf­una varðar þá segir í máls­á­stæðum Icelandair um þann þátt sem varðar heim­ilda­mynd­ina að Margrét hefði ekki að nokkru leyti fært sönnur fyrir því að til staðar væri samn­ingur við efn­isveitur um kaup á heim­il­ar­mynd.

„Í raun hafi stefn­andi ekki sýnt fram á að hafa verið í sam­bandi við for­svars­menn efn­isveitna eða að nokkrar þær aðstæður séu fyrir hendi að minnsti mögu­leiki sé á að samn­ingar gætu náðst um sölu heim­ilda­myndar þeirrar sem stefn­andi heldur fram að til hafi staðið að fram­leiða. Telur stefndi að því sögðu að hafna beri kröfu stefn­anda hvað þennan lið áhrærir enda til­vist hins meinta tjóns lítið meira en orðin tóm.“

Margrét hafði áður leitað til Sam­göngu­stofu og kraf­ist bóta frá Icelandair vegna áður­greindra atvika en nið­ur­staða Sam­göngu­stofu var að flug­fé­lag­inu hefði verið heim­ilt að vísa henni frá borði.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár