Frá Bogota á bráðamóttökuna

Á ferð um landið heill­uð­ust Sandra Gonzalez bráða­læknir og Oscar D. Rubio æða­skurð­læknir svo af Íslandi að þau ákváðu að sækja um á Land­spít­al­anum og setj­ast hér að. Þau segja mik­inn mun á því að vera læknir hér þar sem hægt er að veita öllum rétta þjón­ustu en í heima­land­inu þar sem þjón­ustan veltur á trygg­ingum sjúk­linga.

Frá Bogota á bráðamóttökuna
Komin til að vera Sandra og Oscar voru hissa á hvað það reynd­ist auð­sótt að fá vinnu á Land­spít­al­anum og lækn­inga­leyfi hér á landi. Þau reyna nú að læra íslensku, enda komin til að vera. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Sandra Gonzalez bráða­læknir og Oscar D. Rubio æða­skurð­læknir komu sem ferða­menn til Íslands í nóv­em­ber 2019. „Við keyrðum hring­inn og heill­uð­umst bæði af land­inu. Ísland er mjög fal­legt land og ég sagði við mann­inn minn: „Núna verð ég að koma að sumri til, því ef það er fal­legt á vet­urna – hvernig er þá á sumrin?“ sagði Sandra við Oscar en svo kom Covid. Það var svo árið 2021 sem Oscar keypti flug­miða til Íslands til að bjóða eig­in­kon­unni að sjá eld­gosið í Fagra­dals­fjalli. Sandra seg­ist hafa fallið algjör­lega fyrir Íslandi í ferða­lag­inu. „Þá hugs­aði ég: Hér langar mig að búa, ég vil flytja hingað.“

Sandra og Oscar voru að skrá sig út af hót­eli þegar hót­el­starfs­mað­ur­inn óskar þeim góðrar ferðar til baka og hvetur þau til að heim­sækja Ísland aftur. „Ég sagði við starfs­mann­inn að þetta væri …

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Mjög góð grein. Betur að allir innflytjendur, lærðu að tala og skrifa íslensku. Að þau reyndu og bæðu Íslendinga að tala við þau á íslensku og hjálpa þeim að skilja hana og merkingu orðanna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár