Einn og hálfur tími á bráðamóttöku: Sjálfsskaði, hjartastopp og hnífstunga

Eitt orð má aldrei nota á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og það er orðið rólegt. Nánast um leið og Jón Ragnar Jónsson bráða­læknir hefur orð á að það sé óvenju rólegt á næt­ur­vakt eina helg­ina dynja áföllin á. Hann hefur rétt komið manni til lífs þegar neyð­ar­bjallan hringir á ný. Síðan end­ur­tekur sama sagan sig.

Einn og hálfur tími á bráðamóttöku: Sjálfsskaði, hjartastopp og hnífstunga
Yfirsýn Jón Ragnar Jónsson bráða­læknir og sér­fræð­ing­ur­inn á vakt­inni fer yfir ástand sjúk­lings­ins á meðan hjúkr­un­ar­fræð­ingar sinna honum. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Það er aðeins eitt orð sem ekki má nota á bráða­mót­tök­unni og sér­stak­lega ef það er notað í spurn­ar­formi: Rólegt. Starfs­fólkið talar um „r-orðið“ og notkun á þessu orði er í raun tákn­mynd um það óvænta – áminn­ing um að á bráða­mót­tök­unni getur ástandið breyst á mjög skömmum tíma. Og þegar það ger­ist eru neyð­ar­stæðin mik­il­væg­asta svæðið á bráða­mót­tök­unni. 

Byrjaði óvenju rólega

Það er helgi og það er nótt. Jón Ragnar Jónsson bráða­læknir er sér­fræð­ing­ur­inn á vakt­inni og það hefur verið lítið að gera þrátt fyrir að það sé helgi og nótt. „Þetta eru svo óvenju­legar næt­ur­vaktir – bæði núna í kvöld, laug­ar­dag, og í gær, föstu­dag. Venju­lega er mun meira að gera. Mun meira um djamm, mun meira um ölvun, lík­ams­árásir, vanda­mál tengd fíkni­efnum og svo­leiðis. Þetta er nátt­úr­lega bara svo­lítið sveiflu­kennt. En ég man ekki eftir helg­ar­næt­ur­vöktum sem hafa verið svona rólegar eins og núna. Við erum einum …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár