Orrustan um Hafnarfjörð

Íbúar í Hafn­ar­firði lýsa áhyggjum af áætl­unum Carbfix vegna Coda Terminal-verk­efn­is­ins, þar sem áætlað er að dæla niður koldí­oxíóði í næsta nágrenni við íbúa­byggð. Fyrstu kynn­ingar Carbfix hafi verið allt aðrar en síðar kom í ljós. Þá eru skiptar skoð­anir á verk­efn­inu innan bæj­ar­stjórnar en odd­viti VG furðar sig á með­vit­und­ar­leysi borg­ar­full­trúa í Reykja­vík.

Orrustan um Hafnarfjörð
Arndís Kjart­ans­dóttir fann sig fljót­lega í sér­kenni­legum sporum, sem einn af for­svars­mönnum mót­mæl­enda gegn nið­ur­dæl­ingu í jörðu. Mynd: Golli

Arndísi Kjart­ans­dóttur var óvænt kastað í miðja umræð­una þegar hún gagn­rýndi áform Carbfix í Hafn­ar­firði. Hún býr á Völlunum, en í næsta návígi hefur Carbfix áform um að dæla niður minnst þremur millj­ónum tonna af koldí­oxíði. Fyrir vikið hefur hún staðið í ströngu, en hún hefur meðal ann­ars verið sökuð um að vera illa upp­lýst um málið, að vera Trump­isti og vilja ekki bjarga heim­inum.

Á sama tíma hefur hún, ásamt fleiri mót­mæl­endum, varpað ljósi á eitt umdeildasta mál lands­ins þessa stund­ina og vakið spurn­ing­una um hvort rétt­mætt sé að farga koltví­sýr­ingi sem fluttur er inn erlendis frá nærri íbúa­byggð.

Arndís er ekki ein um að hafa áhyggjur. Oddviti VG í Hafn­ar­firði furðar sig á með­vit­und­ar­leysi borg­ar­full­trúa í Reykja­vík og borg­ar­búa, en borgin er stærsti eig­andi Carbfix og miklir fjár­munir fara af almannafé í rekst­ur­inn. Orku­veita Reykja­víkur sam­þykkti nú í des­em­ber að hækka lána­línu Carbfix um fimm millj­arða …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár