Engan bilbug að finna á verktökunum

Allt að 500 manns vinna nú að nýj­um Land­spít­ala. Fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala ohf. seg­ist ekki hafa orð­ið var við þenslu í bygg­ing­ar­geir­an­um, þótt ein­hver hörg­ull sé á iðn­að­ar­mönn­um til að sinna fínni verk­um, nú þeg­ar minna er orð­ið um gróf­vinnu eins og hina miklu upp­steypu sem stað­ið hef­ur yf­ir und­an­far­in ár.

Engan bilbug að finna á verktökunum
Hringbraut Landspítalasvæðið við Hringbraut hefur breytt um svip á síðustu árum. Hér sést nýi meðferðarkjarninn, hjarta nýs þjóðarsjúkrahúss í Vatnsmýri. Mörg stórhýsi rísa ný á svæðinu. Mynd: Golli

Árum saman hefur verið unnið að byggingu nýs Landspítala við Hringbraut og verður áfram í allmörg ár til viðbótar. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf. (NLSH), segir við Heimildina að um þessar mundir sé unnið að sex mismunandi meginþáttum verksins á Hringbrautarsvæðinu, en að auki annast NLSH uppbyggingu nýbyggingar við Grensásdeild og nýbyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Það er í mörg horn að líta. Á Hringbrautarsvæðinu er unnið að því að byggja 10 þúsund fermetra hús fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, rannsóknahús sem verður 18 þúsund fermetrar og tuttugu þúsund fermetra bílastæða- og tæknihús. „Svo er verið að vinna í meðferðarkjarnanum og uppi á þaki og í bílakjallaranum,“ segir Gunnar og nefnir að þá sé ótalið það sem verið er að vinna erlendis, við smíði tækja og búnaðar inn á nýja spítalann. 

Beðinn um að draga saman mannaflaþörfina í verkefnum félagsins segir Gunnar að líklega séu um 350 til 400 manns …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár