Miðlar jaðarsettum röddum með Gargi

Garg er ný bóka­búð í mið­bænum sem deilir rými með ker­amik-stúd­íó­inu Klei Atelier á Bald­urs­götu 36. Grafíski hönn­uð­ur­inn Helga Dögg rekur versl­un­ina, en hún lauk við meistara­gráðu í fag­inu í Eist­landi nú í vor og vinnur að því að stækka úrvalið af bókum í Reykja­vík.

Miðlar jaðarsettum röddum með Gargi

Helga hefur starfað við graf­íska hönnun síð­ast­lið­inn ára­tug en á þeim tíma hefur áhuga­svið hennar stækkað, ekki síst vegna starfa hennar við útgáfu bóka og ann­ars prentefnis.

Und­ir­rituð hitti Helgu í bóka­búð­inni á dög­unum. Rýmið er lítið en hver bók fær sitt pláss. Því eru bæk­urnar ekki margar en úrvalið er hand­valið af Helgu. Við ræddum um per­sónu­legt sam­band Helgu við bækur, námið í Eist­landi og þá iðju að veita öðrum pláss.

Hönnuður gerist bóksali

Helga hefur hannað bækur og annað prentefni í 10 ár. Fag­stjór­inn í BA-námi hennar við Lista­há­skóla Íslands var bóka­hönn­uð­ur­inn Birna Geir­finns­dóttir, sem hafði mikil áhrif á Helgu. Bóka­hönnun krefst mik­illar nákvæmni en Helga hefur sínar efa­semdir um kröf­una að allt þurfi að vera full­komið. Henni þykir skemmti­leg­ast að setja upp texta, enda fær hún þannig að lesa á meðan hún vinnur.

 Áhugi Helgu á bókum hefur alltaf verið til staðar en í byrjun var hann …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár