Joe Biden Kamala Harris tók seint við af Joe Biden í kosn­inga­bar­átt­unni til að geta haldið völdum í Hvíta hús­inu. Tvö kjör­tíma­bil hefði þurft til að ná fram fullum áhrifum Bidenomics efna­hags­stefn­unnar, sem sneri baki við nýfrjáls­hyggj­unni. Mynd: afp

Bæbæ, Biden!

Arfleifð Joe Bidens og áhrif umbreyt­inga hans á efna­hags­svið­inu hefði þurft fleiri ár til að ná fullri virkni og skila sér til kjós­enda. Þeir völdu sér aftur fyrrum for­seta og mark­að­irnir brugð­ust glaðir við. Hér er farið yfir sög­una að baki Bidenomics-hag­fræð­inni og hún sett í alþjóð­legt og íslenskt póli­tískt sam­hengi.

Nú liggur ljóst fyrir að Trump tekur aftur við sem for­seti í Banda­ríkj­unum í jan­úar, þá 78 ára, eftir fjög­urra ára hlé frá því síð­asta fjög­urra ára tíma­bili hans lauk. Þegar að nið­ur­stöður kosn­ing­anna lágu fyrir nú í vik­unni, með afger­andi meiri­hluta hans, þá er ljóst að ekk­ert varð úr hætt­unni af hæg­fara borg­ara­styrj­öld í anda árás­ar­innar á þing­húsið í Washington 6. jan­úar 2021. 

Kamala Harris, vara­for­seti Demókra­ta­flokks­ins, tap­aði fyrir Donald Trump, rétt eins og Hillary Clinton gerði fyrir átta árum síðan. Joe Biden lýkur ferli sínum sem for­seti Banda­ríkj­anna nú eftir ára­mótin. Hvað sem segja má um síð­ustu vik­urnar eða mán­uð­ina hans í kosn­inga­bar­átt­unni, áður en hann lét vara­for­set­ann taka við af sér, starf­andi sjálfur áfram sem for­seti, þá er ekki hægt að horfa fram hjá efna­hags­legri arf­leifð valda­tíðar hans.

Efna­hags­stefnan sem rekin hefur verið síð­ustu fjögur árin hefur verið nefnd í höf­uðið á honum, Bidenomics, sem er orðið …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár