Bandaríska alríkislögreglan (FBI) sendi frá sér tilkynningu í kvöld þar sem greint er frá því að rannsókn standi yfir á atviki á golfvelli Trumps í Palm Beach í Flórída. Þar var Trump, fyrrverandi forseti, núverandi forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í golfi og var samkvæmt fjölmiðlum vestra á milli fimmtu og sjöttu holu þegar skothvellir heyrðust. Honum var komið í skjól og sakaði ekki.
„Ég mun aldrei gefast upp“
Í tilkynningu alríkislögreglunnar segir að Trump „virðist hafa verið sýnt banatilræði.“ Sjálfur sendi Trump frá sér yfirlýsingu áður en lögreglan hafði greint frá því að líklega hefði verið reynt að ráða hann af dögum á golfvellinum. Þar segist Trump vera heill á húfi. „Það voru skothvellir í nágrenninu en áður en sögusagnir sem eiga ekki við rök að styðjast fara af stað vildi ég að þið heyrðuð þetta frá mér; Ég er öruggur og líður vel. Ekkert mun stöðva mig. Ég mun aldrei gefast upp. Ég mun alltaf elska þau sem styðja mig.“
Maður í haldi lögreglu
Maður á sextugsaldri var handtekinn í kvöld, grunaður um að hafa skotið af rifflinum. Segja fjölmiðlar í Bandaríkjunum að hann hafi verið í um 300 metra fjarlægð frá Trump þegar hann skaut. Þá segir FBI að riffillinn hafi verið með sjónauka en auk þess hafi fundist bakpoki sem talinn er í eigu mannsins sem skaut og að í honum hafi verið GoPro myndavél og talið að hann hafi ætlað að taka verknaðinn upp á myndband.
CNN segir frá því í kvöld að leyniþjónusta Bandaríkjanna hafi áður lýst yfir áhyggjum af öryggismálum á golfvöllum og hefur völlur Trump sérstaklega verið nefndur í því samhengi. Segir leyniþjónustan að afar erfitt sé að tryggja öryggi ráðafólks á slíkum völlum.
Ef staðfest verður að um banatilræði við Trump hafi verið að ræða er það í annað sinn á á stuttum tíma sem reynt er að ráða honum bana því að fyrir tveimur mánuðum særðist Trump á eyra eftir að skotið var á hann á kosningafundi í Pensylvaníu.
Athugasemdir