Var eignalaus og verður eignalaus

Sigfúsi Krist­ins­syni, bygg­inga­meist­ara á Selfossi, finnst illa farið með skatt­pen­inga sína. Ráðamenn ráði ekki við verk­efnið. Hann seg­ist hafa komið inn í þetta líf eigna­laus og verði eigna­laus eftir að hann hverfi yfir móð­una miklu. „Ég á fimm börn. Þau fá að ríf­ast um eignir og pen­inga sem ég skil eftir.“

Var eignalaus og verður eignalaus
„Nei blessuð vertu, ég er enn að smíða“ Sigfús Krist­ins­son, bygg­inga­meist­ari byrj­aði að smíða þegar hann var 18 ára. Það var árið 1950. Á tekju­lista Heim­ild­ar­innar eru aðeins fjórar mann­eskjur eldri en Sigfús sem var með rúmar 50 millj­ónir í heild­ar­árs­tekjur í fyrra. Mynd: sunnlenska.is

Sigfús Krist­ins­son, bygg­inga­meist­ari og bygg­inga­stjóri á Selfossi, er í sæti númer 1.200 á hátekju­lista Heim­ild­ar­innar. Á list­anum eru aðeins fjórar mann­eskjur sem eru eldri en hann. Sigfús er 92 ára og byrj­aði að smíða þegar hann var átján ára. Það var árið 1950.

Flestir Sel­fyss­ingar og nær­sveita­fólk kann­ast við Sigfús, eða Fúsa Kristins, eins og hann er oft­ast kall­aður. Hann hefur enda komið að bygg­ingu mik­ils fjölda húsa á Suð­ur­landi í 74 ár. Hann byggði meðal ann­ars Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands, Sjúkra­hús Suð­ur­lands, íþrótta­húsið á Laug­ar­vatni og vöru­hús Kaup­fé­lags Árnes­inga. 

„Nei, blessuð vertu, ég er enn að smíða,“ segir Sigfús spurður hvort hann sé búinn að leggja ham­ar­inn á hill­una. „Ég hef ekki mikið hugsað um heils­una. Það hefur verið svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma til þess en er nú samt við hesta­heilsu,“ segir Sigfús og bætir við að …

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár