Mikil ógn fylgir því að Bandaríkin séu í stríði við sjálf sig,“ staðhæfði Halla nýlega í viðtali á CNN, í kjölfar tilræðisins við Trump. Með klút um hálsinn og talaði áreynslulausa amerísku, heimavön eins og við eldhúsborðið.
Ásýnd Íslands – í dag.
En á fullveldisdaginn, í aðdraganda jóla, árið 2015 brá henni þegar hún sá að skorað hafði verið á hana á Facebook að bjóða sig fram til forseta Íslands.
„Það hafði verið mikið frost og þykk snjóbreiða lá yfir öllu höfuðborgarsvæðinu. Um kvöldið tók að hlána og um miðnætti gaf þakið á heimili okkar eftir og vatn rann niður nýveggfóðraðan útvegginn í stofunni. Mér fannst húsið endurspegla mitt innra ástand,“ skrifar hún í bók sinni Hugrekki til að hafa áhrif. Bókina kveðst hún skrifa til að hvetja lesandann til að virkja hugrekki sitt til góðra verka, fullviss þess að hvert okkar geti …





















Athugasemdir (2)