Telur gagnrýni í garð meirihlutans hafa kostað hann starf hjá Hafnarfjarðarbæ

Hraun­valla­skóli í Hafn­ar­firði aft­ur­kall­aði ráðn­ingu manns dag­inn eftir að hann gagn­rýndi meiri­hluta bæj­ar­stjórnar opin­ber­lega. Skýr­ingin sem mað­ur­inn fékk fyrir aft­ur­köllun ráðn­ing­ar­innar var sú að stæð­ist ekki mennt­un­ar­kröfur.

Telur gagnrýni í garð meirihlutans hafa kostað hann starf hjá Hafnarfjarðarbæ
Gagnrýni „Ég tjáði mig um þá ákvörðun og leyfði mér að gagn­rýna meiri­hluta bæj­ar­stjórnar harð­lega, eins og ég trúði að mér væri frjálst að gera sem frjáls maður í frjálsu landi,“ skrifar Óskar. Mynd: Wikimedia Commons

Tilboð um starf hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ sem Óskar Steinn Ómarsson hafði þegið var skyndi­lega dregið til baka dag­inn eftir að Óskar gagn­rýndi meiri­hluta bæj­ar­stjórnar opin­ber­lega fyrir að loka ung­menna­hús­inu Hamrinum í bænum. Þessu greinir Óskar frá í Facebook-færslu frá því fyrr í dag. 

Óskar Steinn seg­ist hafa sótt um stöðu deild­ar­stjóra tóm­stunda­mið­stöðvar Hraun­valla­skóla í vor og fengið starfið. Viku síðar tók bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar þá ákvörðun að loka ung­menna­hús­inu Hamrinum. Þetta lík­aði Óskari illa. En hann hafði starfað þar í hluta­starfi í á fimmta ár.

„Ég tjáði mig um þá ákvörðun og leyfði mér að gagn­rýna meiri­hluta bæj­ar­stjórnar harð­lega, eins og ég trúði að mér væri frjálst að gera sem frjáls maður í frjálsu landi,“ skrifar Óskar á Facebook.

Hann gerði þetta meðal ann­ars með því að skrifa grein um málið á Vísi, Aðför að ung­mennum (Í minn­ingu Ham­ars­ins), þar sem hann fór hörðum orðum um bæj­ar­yf­ir­völd og þeirra vinnu­brögð. Í grein­inni velti hann því meðal ann­ars upp hvort að meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar væri ef til vill hald­inn útlend­inga­andúð eða að ákveðnir starfs­menn Ham­ars­ins væru honum ekki póli­tískt þókn­an­legir.

Stjórnmálafræði nýtist ekki í starfi

Daginn eftir að greinin birt­ist fékk Óskar sím­tal frá skóla­stjóra Hrauna­valla­skóla þar sem honum var til­kynnt að við frek­ari skoðun stæð­ist hann ekki mennt­un­ar­kröfur. Þremur vikum eftir að honum hafði verið ráð­inn í starfið var ráðn­ingin því aft­ur­kölluð. 

„Ég óskaði eftir nán­ari rök­stuðn­ingi og í honum segir að BA gráða mín í stjórn­mála­fræði sé ekki nógu skyld tóm­stunda­fræði eða mennt­un­ar­fræði til að hún geti talist sem „annað háskóla­nám sem nýt­ist í starfi.““

Óskar segir að í rök­stuðn­ingum sé ekki minnst á ára­langa reynslu hans af tóm­stunda­starfi með ung­mennum og þau mörgu nám­skeið sem hann hafi sótt um ung­menna­starf. „Þar að auki virð­ist það engu máli skipta að í nokkrum tóm­stunda­mið­stöðvum Hafn­ar­fjarðar starfa deild­ar­stjórar með aðra háskóla­menntun, meðal ann­ars í stjórn­mála­fræði,“ skrifar Óskar.

Nú seg­ist hann standa í stappi við bæinn um hvort sveit­ar­fé­lagið geti fallið frá ráðn­ingu í starf sem þegar var búið að ráða hann í. „Á meðan dælir bær­inn pen­ingum útsvars­greið­enda í að aug­lýsa starfið á sam­fé­lags­miðlum og þurfti að fram­lengja umsókn­ar­frest­inn því eitt­hvað virð­ist fram­boðið lítið af góðum kandídötum í starfið - ein­hverjum öðrum en mér alla­vega.“

Dæmi um ógnarstjórn og spillingu

Saga Óskars hefur valdið tals­verða hneykslan á net­inu, en til dæmis segir Davíð Arnar Stef­áns­son, odd­viti Vinstri grænna í Hafn­ar­firði, í ummælum undir færsl­unni að lýs­ing Óskars sé „auð­vitað ekk­ert annað en vísir að ógn­ar­stjórn.“ Þetta sé ekki eina dæmið um slíkt. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir þetta snú­ast um að ráða aldrei fólk sem viðri skoð­anir sínar opin­ber­lega til starfa. „Meðvituð leið til að halda hæfu fólki frá opin­berum störfum,“ skrifar hún. 

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, deilir færsl­unni og segir að sagan sé ágætis útskýr­ing á því hvernig farið sé með póli­tískt vald á Íslandi. „Þetta er dæmi um spill­ingu - í skiln­ingi þess að hér er verið að spilla / skemma skýrt og fag­legt ferli með póli­tískum afskiptum. Það er amk það sem ég les á milli lín­anna að hafi gerst þarna. Við verðum að gera betur.“

Lars Imsland, skóla­stjóri Hraun­valla­skóla, neitað að tjá sig um málið þegar Heim­ildin náði af honum tali. Ekki náð­ist í Rósu Guð­bjarts­dóttur bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði við vinnslu frétt­ar­innar og ekki fékkst sam­band við sam­skipta­stjóra bæj­ar­ins, nema í gegnum tölvu­póst. 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár