Sjö leiðir að langlífi

Frá örófi alda hefur mann­fólkið reynt að finna leiðir að lang­lífi. Það þykir heill­andi að lifa lengi og okkur er sífellt að takast að lifa örlítið lengur. En hver er lyk­ill­inn að lang­lífi? Ef nið­ur­stöðum ýmissa rann­sókna er hrúgað saman er þetta nið­ur­staðan:

Sjö leiðir að langlífi
Listin að eld­ast Það er ákveðin list að feta veg­inn að lang­lífi. Mynd: Golli

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að reglu­leg hreyf­ing auki lífslíkur. Hver rann­sóknin á fætur annarri styður það. Líkamleg hreyf­ing stuðlar að bættri heilsu fyrir hjarta- og æða­kerfið og styrkir vöðva, svo fátt eitt sé nefnt. „Ef við verjum hluta af full­orð­ins­árum okkar í að byggja upp vöðvamassa, styrk, jafn­vægi og úthald skilar það sér eftir því sem lík­am­inn eld­ist,“ segir dr. Anna Chang, öldr­un­ar­læknir og pró­fessor við Háskól­ann í Kali­forníu. Hreyf­ingin þarf ekki að vera áköf. 20 mín­útna ganga á dag getur til dæmis verið gagn­leg. Ganga er van­metin þjálfun, rétt eins og sjúkra­þjálf­ar­inn Gauti Grét­ars­son ræddi í við­tali við Heim­ild­ina.  

Skiptar skoð­anir eru um matar­æði og heilsu­sam­legan ábata þess, bæði þegar kemur að rann­sóknum og tísku­bylgjum. Flestar …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Að ganga úti nokkra km. á dag bjargar öllu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár