„Orð gegn orði“ réttlætir ekki niðurfellingu

„Orð gegn orði“ réttlætir ekki niðurfellingu

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu segir það brot gegn sátt­mál­anum að láta kyn­ferð­is­brot við­gang­ast refsi­laust. Fast­mótuð dóma­fram­kvæmd rétt­ar­ins lofar góðu fyrir átta íslensk mál sem bíða í Strass­borg. Taka þurfi kærur af mik­illi alvöru og rann­saka mál til fulls þótt fram­burðir stang­ist á. Sak­sókn­ari segir mik­inn metnað ríkja innan kerf­is­ins til að fullrann­saka kyn­ferð­is­brota­mál. Töluverð fram­þróun hafi orðið við sönnun mála. Stafræn gögn geti skipt sköpum. Nýir dómar frá Strass­borg gætu gefið til­efni til nýrra kæru­mála frá Íslandi.

Sumarið 1995 fór fjórtán ára stúlka út að skemmta sér með vin­konu sinni. Þar sem hún beið í röð við skemmti­stað tóku þrír ungir menn hana tali eftir að hafa stöðvað bíl sinn við bið­röð­ina. Hún kann­að­ist við tvo þeirra og þáði boð um að fara með þeim á annan skemmti­stað í nokk­urri fjar­lægð. Á baka­leið­inni vildu menn­irnir aka á afvik­inn stað og fá sér sund­sprett. Stúlkan var ekki sam­þykk því en þeir óku engu að síður á stað­inn og skildu hana eftir í bílnum. Að sögn stúlkunnar kom einn mann­anna til baka á undan hinum og neyddi hana til sam­ræðis við sig í bílnum. Þegar hinir komu til baka var ekið með stúlk­una í íbúð­ar­hús og þar segir hún annan mann­anna hafa nauðgað sér. Sjálf hafi hún grátið stöðugt bæði meðan á nauðg­un­inni stóð og fram á næsta dag, allt þar til móðir hennar kom og sótti hana á …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár