Fyrstu tölur: Halla Tómasdóttir leiðir

Halla Tóm­as­dóttir er með tölu­vert for­skot á aðra fram­bjóð­endur sam­kvæmt fyrstu tölum sem birtar hafa verið í for­seta­kosn­ing­unum 2024 eða um rúm­lega 37 pró­sent atkvæða.

Fyrstu tölur: Halla Tómasdóttir leiðir
Efst Halla Tóm­as­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir í sjón­varps­sal á meðan fyrstu tölur voru lesnar í kvöld. Mynd: Golli

Halla Tóm­as­dóttir er með rúm­lega 37 pró­sent atkvæða sam­kvæmt fyrstu tölum úr for­seta­kosn­ing­unum árið 2024. Katrín Jak­obs­dóttir  er með 21,4 pró­sent. Þær allra fyrstu bár­ust úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi rétt fyrir kl. 23 og höfðu þá 3.000 atkvæði verið talin. Samkvæmt þeim tölum var Halla Tóm­as­dóttir með 35,4 pró­sent atkvæða og  Katrín með 27 pró­sent tal­inna atkvæða í kjör­dæm­inu. Halla Hrund Loga­dóttir fylgdi þar á eftir með rúm 17 pró­sent.

Skömmu síðar bár­ust tölur úr Suð­ur­kjör­dæmi og sam­kvæmt þeim er Halla Tóm­as­dóttir með yfir­burða­for­skot eða 37,7 pró­sent atkvæða. Katrín er með 19,6 pró­sent sam­kvæmt þessum fyrstu tölum kjör­dæm­is­ins.

Efstu þrjárHalla Hrund Loga­dóttir (f.v.), Katrín Jak­obs­dóttir og Halla Tóm­as­dóttir í smink­her­berg­inu á RÚV áður en fyrstu tölur voru lesnar. Þær hafa leitt í skoð­ana­könn­unum und­an­farna daga.

Þegar 12.786 atkvæði höfðu verið talin í kosn­ing­unum rétt eftir kl. 23 að kvöldi kosn­inga­dags var staðan þessi:

Halla Tóm­as­dóttir: 37,2%

Katrín Jak­obs­dóttir: 21,4%

Halla Hrund Loga­dóttir: 16,2%

Jón Gnarr: 10%

Baldur Þór­halls­son: 8,6%

Arnar Þór Jónsson: 5,5%

Aðrir fram­bjóð­endur höfðu hlotið innan við 5 pró­sent atkvæða.

Landinu er skipt í sex kjör­dæmi en taln­ing­ar­staðir eru þó aðeins fimm því atkvæði í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur eru talin á sama stað, þ.e. í Laugardals­höll. Von er á fyrstu tölum úr Reykja­vík um mið­nætti og er þær verða birtar er lík­legt að um 60 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­unum tveimur hafi verið talin. Lokatalna í kosn­ing­unum er hins vegar ekki að vænta fyrr en undir morgun.

Samkvæmt loka­kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar, sem birt var í morgun, voru taldar yfir­gnæf­andi líkur á því að annað hvort Halla Tóm­as­dóttir eða Katrín Jak­obs­dóttir yrði næsti for­seti.  Katrín mæld­ist með 24,3 pró­senta fylgi og Halla með 23,2 pró­sent en mun­ur­inn var ekki mark­tækur.

Kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar var birt reglu­lega í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Hún er unnin af dr. Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi og byggði á vigtun og grein­ingu á öllum þeim skoð­ana­könn­unum sem fram­kvæmdar eru. Auk þess að reikna út loka­mat á fylgi fram­bjóð­enda reikn­aði hann líka út líkur á sigri þeirra. Inn í þá útreikn­inga voru nið­ur­stöður loka­mats­ins teknar sem og sögu­legt frá­vik í síð­ustu könn­unum fyrir kosn­ingar. Enn­fremur var það gert með því að keyra um 500 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar til þess að reikna út hversu lík­legt væri að hver og einn fram­bjóð­andi sigri.

Nið­ur­staða þessa mats var sú að Halla Tóm­as­dóttir ætti 41 pró­sent líkur á sigri og Katrín 40 pró­sent.

Fréttin verður upp­færð.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hér má sjá hvernig útgerðin reyndi að koma Davíð Oddssyni á Bessastaði 2016

    https://www.rikisend.is/skyrslur/nanar?id=287

    Fróðlegt verður að sjá uppgjör Katrínar Jakobsdóttur 2024
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Íhaldið og stórútgerðin töpuðu forsetakosningunum 2024

    :-) :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár