Donald Trump fundinn sekur í öllum ákæruliðum

Donald J. Trump varð í kvöld fyrsti Banda­ríkja­for­seti sög­unnar til að vera fund­inn sekur um að fremja glæp.

Donald Trump fundinn sekur í öllum ákæruliðum
Fyrir dómi For­set­inn fyrr­ver­andi á leið í dóm­sal­inn í New York í dag. Mynd: AFP

Donald J. Trump, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna sem sæk­ist eftir því að taka aftur við því emb­ætti í kom­andi kosn­ingum, var í kvöld fund­inn sekur um að falsa gögn í tengslum við greiðslur sem greiddar voru til klám­mynda­leikkon­unnar Stormy Daniels. Trump var ákærður í 34 ákæru­liðum og sak­felldur fyrir þá alla. Kvið­dómur í New York kvað upp þessa nið­ur­stöðu eftir að hafa ráð­fært sig um hana í tvo daga.

Rétta­höldin stóðu yfir í nokkrar vikur og verj­endur Trump og sak­sókn­ari í mál­inu luku mál­flutn­ingi sínum í byrjun viku. Á þriðja tug vitna komu fyrir dóm­inn. Trump var ákærður fyrir að falsa reikn­inga og önnur gögn í tengslum við greiðslur til Daniels sem fyrr­ver­andi lög­maður hans, Michael Cohen, innti af hendi til hennar. Cohen veð­setti heim­ili sitt til að borga Daniels, sem heldur því fram að hún hafi sofið hjá Trump, 130 þús­und dali fyrir að selja ekki sögu sína til fjöl­miðla í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna 2016, sem Trump sigr­aði. Trump var gefið að sök að hafa end­ur­greitt Cohen, sem var einn þeirra sem bar vitni fyrir sak­sóknar­ann í mál­inu, eftir að hann var orð­inn for­seti.

Málið kom upp á við­kvæmum tíma í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir tæpum átta árum. Access Hollywood-skandall­inn, þar sem Trump tal­aði ógæti­lega á upp­töku um hvernig hann kæmi fram við konur, hafði nýlega komið upp og vitni við rétt­ar­höldin sögðu frá því að ótti hefði verið í her­búðum for­set­ans fyrr­ver­andi að annar slíkur skandall myndi skaða fram­boðið enn frekar. 

Þetta er eitt af fjórum málum þar sem Trump hefur verið ákærður, en hann er fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna til að verða ákærður fyrir glæpi í sögu lands­ins. Hann hefur líka verið ákærður vegna aðkomu sinnar að árásinni á banda­ríska þing­húsið  6. jan­úar 2021, fyrir með­ferð sína á trún­að­ar­skjölum sem hann flutti með sér á heim­ili sitt í Mar-a-lago eftir að hann lét af emb­ætti og fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna í Georgiu-ríki árið 2020. 

Málið sem dæmt var í í dag er þó eina málið sem hefur ratað í máls­með­ferð enn sem komið er og lög­menn Trump hafa gert allt sem í sínu valdi stendur til að tefja fram­gang hinna mál­anna þriggja, með miklum árangri, svo þau verði ekki tekin fyrir áður en kosið verður milli Trump og Joe Biden Banda­ríkja­for­seta í nóv­em­ber. Stjórn­mála­skýrendur í Banda­ríkj­unum búast flestir ekki við því að hin málin verði afgreidd áður en kosn­ing­arnar fara fram.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    USA-fólkið virðist hafa litlar áhyggjur af því, þó kauðinn sé ákærður fyrir fjölda mála og núna dæmdur sekur af öllum ákæruliðum, hvað segir skrudda USA-fólksins um fólk sem sækist eftir því að verða forseti USA og er dæmdur glæpamaður ? Þarf að dæma kauða 1 eða 10 sinnum ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár