„Ég hef ástríðu fyrir því að Íslendingar haldi sjálfstæði sínu“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, for­seta­efni Mynd: Golli

„Ég hef ástríðu fyrir því að Íslendingar haldi sjálfstæði sínu“

Steinunn ÓIína Þor­steins­dóttir, sam­fé­lags­rýn­ir­inn og lista­maður til ára­tuga, hefur nú staðið í kosn­inga­bar­áttu til for­seta með eft­ir­minni­legum hætti og vill að þjóðin finni kjarkinn. Sem for­seti hefði hún það erindi að standa ein­dregið gegn áformum hags­muna­afl­anna í sam­fé­lag­inu.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir er góð­kunn íslensku þjóð­inni. Sem leik­kona hefur hún prýtt kvik­mynda­tjaldið, sjón­varps­skjá­inn og fjalir leik­húss­ins um ára­tuga­skeið og skemmt Íslend­ingum á einn eða annan hátt. Steinunn fór í langt hlé frá leik­list­inni, flutti meðal ann­ars til Banda­ríkj­anna með eig­in­manni og börnum í átta ár, ein­beitti sér að upp­eldi barna sinna sem og að leggja grunn að rekstri fjöl­mið­ils, hins end­ur­reista Kvenna­blaðs, sem hún í tæp átta ár rit­stýrði og var sam­fé­lags­rýnir með meiru.

Á und­an­förnum árum hefur Steinunn Ólína snúið aftur í leik­list­ina og vakið lukku með leik sínum. Allt frá harðsvíraðri löggu í hasar­grín­mynd­inni Leynilögga, yfir í háðs­fyllta drama­tík sem tit­il­per­sóna Múttu Courage á sviði Þjóð­leik­húss­ins, í drauma­hlut­verki sínu þar. Í við­tali við RÚV á síð­asta ári sagð­ist hún raunar aldrei hafa haft eins gaman af leik­list­inni. Nú býður Steinunn sig hins vegar fram til for­seta Íslands og Heim­ildin átti sam­tal við hana um þá ákvörðun, …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár