Mun fylgja vitum vestrænnar menningar í embætti

Arnar Þór Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi segir að hann muni sækja styrk í upp­runa sinn, hug­mynda­fræði og gildi sem hann hefur mótað sér yfir ævina í emb­ætti for­seta Íslands, nái hann kjöri. Hann staldr­aði í stutta stund við í alræmda frama­halds­skól­anum Columbine í Colorado-ríki í Banda­ríkj­unum.

Mun fylgja vitum vestrænnar menningar í embætti
Arnar Þór Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi staldr­aði í stutta stund við í alræmdum fram­halds­skóla í Banda­ríkj­unum. Mynd: Golli

Arnar Þór Jónsson, for­seta­fram­bjóð­andi og hæsta­rétt­ar­lög­maður, segir dvöl sína í Banda­ríkj­unum og Englandi hafa haft mót­andi áhrif á stjórn­mála­skoð­anir hans, lífs­sýn og sál­ar­líf. Arnar Þór telur hug­mynd­irnar og þau gildi sem hann hefur til­einkað sér í gegnum lífið vera gott vega­nesti í emb­ætti for­seta Íslands, nái hann kjöri. 

Arnar Þór fædd­ist í Vest­manna­eyjum 2. maí 1971. Eitt það fyrsta sem hann nefnir í svari sínu um hvað hafi mótað hann, er Heima­eyj­ar­gosið sem hófst í jan­úar árið 1973. Ham­far­irnar settu mark sitt á líf hans rétt eins og aðra Vest­manna­ey­inga. Þá nefnir hann einnig sumrin sem hann varði í sveit á ung­lings­árum og stör­f­unum sem hann sinnti þar. Sú reynsla hafi haft mikil mót­andi áhrif á hann. 

„Það hafði mjög mót­andi áhrif á mig líka að ég var heilt sumar í Englandi þegar ég var ung­lingur í tungu­mála­skóla. Það var styrkj­andi á sinn hátt, þá var ég fimmtán …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár