Halda vöxtum háum þrátt fyrir væntingar ráðherra

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands til­kynnti í morgun um ákvörðun sína að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Í til­kynn­ingu bank­ans kemur þó fram að ýmis­legt bendir til þess að verð­bólga muni halda áfram að lækka og nálg­ast mark­mið bank­ans innan ásætt­an­legs tíma.

Halda vöxtum háum þrátt fyrir væntingar ráðherra
Seðla­banki Íslands heldur stýri­vöxtum óbreyttum Mynd: Golli

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands munu halda áfram að vera í 9,25 pró­sentum. Rétt í þessu til­kynnti pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans um ákvörðun sína um að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Stýri­vextir hafa ekki verið hærri síðan árið 2009.

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru hækk­aðir í 9,25 pró­sent í ágúst í fyrra. Með ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar í morgun liggur fyrir að stýri­vextir munu hald­ast í þeim hæðum í heilt ár, enda næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur ekki fyrr en 21. ágúst næst­kom­andi. 

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að ýmis­legt bendi til þess að verð­bólga muni þró­ast í átt að mark­miðum bank­ans, en í dag mælist hún sex pró­sent.

Hægt hefur á vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar og horfur eru á að hag­vöxtur drag­ist saman á þessu ári. Í til­kynn­ingu bank­ans er þó tekið fram að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum sé meiri en áður var talið.

Hins vegar segir í til­kynn­ing­unni að enn sé óljóst um áhrif nýgerðra kjara­samn­inga og boð­aðra aðgerða í rík­is­fjár­málum.„Þótt hægt hafi á vinnu­mark­aði er spenna enn til staðar sem gæti ýtt undir launa­skrið með til­heyr­andi áhrifum á verð­bólgu.“

Vonbrigði fyrir suma en viðbúið hjá öðrum

Flestir grein­ing­ar­að­ilar voru ekki von­góðir um vaxta­lækkun, og spáðu því að vext­irnir héld­ust áfram óbreyttir. Sú breyt­ing hefur orðið á pen­inga­stefnu­nefnd­inni frá síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi að eina „dúfan“ í henni, en það heiti er notað yfir þá sem vilja beita mild­ari með­ölum til að takast á við efna­hags­legar aðstæður, er nú horf­inn til ann­arra starfa. Það var Gunnar Jak­obs­son, einn vara­seðla­banka­stjóra bank­ans, en hann hefur talað reglu­lega fyrir því að að lækka vexti síð­ustu mán­uði. Í hans stað hefur tíma­bundið sest Arnór Sig­hvats­son, fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ingur og vara­seðla­banka­stjóri í Seðla­bank­anum.

Tveir helstu ráða­menn þjóð­ar­innar, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tjáðu sig báðir um mögu­legar vaxta­breyt­ingar í gær. Bjarni sagði við Vísi að hann von­að­ist til þess að Seðla­bank­inn myndi lækka vexti á morgun og að hann teldi að aðstæður væru til þess. Sigurður Ingi sagði við RÚV að aðstæður í efna­hags­líf­inu ættu að gefa svig­rúm til að lækka vexti.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Tveir helstu ráðamenn þjóðarinnar, þ.e. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson ættu ekki undir neinum kringumstæðum að tjá sig fyrr en eftir ákvörðun Seðlabanka sem á að vera sjálfstæð stofnun.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár