Mikilvægi þess að mæta á réttum tíma

Rit­höf­und­ur­inn Bragi Ólafsson frum­birtir á menn­ing­ar­síðum Heim­ild­ar­innar nýja smá­sögu til að njóta með páska­eggj­unum. Góð saga gerir allt skemmti­legra og það vissi Ernest Hemingway sem var bæði með bar og bóka­skáp á kló­sett­inu. Gleði­lega páska!

Mikilvægi þess að mæta á réttum tíma

Þremur vikum áður en þessi saga ger­ist – saga sem vel að merkja er um það bil að hálfu leyti sönn – var lokið við smíði sorp­tunnu­geymslu fyrir framan nokkuð nýlega íbúða­blokk í þeim hluta Reykja­víkur sem jafnan er kall­aður Aust­ur­bær­inn. Hverfið er þó ekki austar en svo að það liggur vest­an­megin við mið­svæði borg­ar­innar. Sorp­tunnu­geymslan er aftur á móti norð­an­megin við blokk­ina, en ekki endi­lega fyrir framan hana; hún er allt eins fyrir aftan – fer eftir hvernig litið er á það. Geymslan er þó, eins og áður sagði, fyrir utan húsið; og tunn­urnar fyrir innan ekki að fullu varðar fyrir veðri og vindum, því veggir hennar, sem byggðir eru úr tré, hleypa í gegnum sig lofti og vatni – þessu má jafn­vel líkja við búr, nema að riml­arnir eru ekki úr málmi. Þetta er fremur fal­legt mann­virki, þótt það sem það hýsi sé ef til vill ekk­ert til …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár