Snævi þakinn ævintýraheimur og systrakærleikur

Söng­leik­ur­inn Frost laðar að unga sem aldna, enda sagan fræg. Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir rýnir í upp­færsl­una.

Snævi þakinn ævintýraheimur og systrakærleikur
Hildur Vala sem Elsa Söng­leikur upp úr hinni frægu og ást­sælu sögu Frost hefur nú raun­gerst í Þjóð­leik­hús­inu.
Leikhús

Frost

Niðurstaða:

Þjóðleikhúsið

Tónlist og söngtextar: Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez

Handrit: Jennifer Lee

Þýðing: Bragi Valdimar Skúlason

Leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson

Leikarar: Hildur Vala Baldursdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Jósefína Dickow Helgadóttir / Nína Sólrún Tamimi, Emma Máney Emilsdóttir / Iðun Eldey Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Kjartan Darri Kristjánsson, Almar Blær Sigurjónsson, Ernesto Camilo Aldazábal Valdés, Viktoría Sigurðardóttir, Atli Rafn Sigurðsson, Bjarni Snæbjörnsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Örn Árnason, Edda Arnljótsdóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir / María Thelma Smáradóttir, Árni Gunnar Magnússon / Garðar Sigur Gíslason, Embla María Jóhannsdóttir / Halla Björg Guðjónsdóttir, Aron Gauti Kristinsson, Kormákur Erlendsson, Sindri Gunnarsson, Adriana Alba Pétursdóttir og Andrea Ísold Jóhannsdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Christina Lovery

Lýsing: Torkel Skjærven

Tónlistarstjórn: Andri Ólafsson og Birgir Þórisson

Hljóðhönnun: Þóroddur Ingvarsson og Brett Smith

Dans og sviðshreyfingar: Chantelle Carey

Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir

Gefðu umsögn

Eft­ir­vænt­ing var áþreif­an­leg í Þjóð­leik­hús­inu síð­ast­lið­inn laug­ar­dag og yngstu áhorf­end­urnir svo­leiðis skopp­uðu inn í leik­húsið. Mætt til leiks voru all­margar Elsur, nokkrar Önnur og meira að segja einn Ólafur í fullum skrúða til að sjá Disney-söng­leik­inn Frost á leik­sviði.

Fyrir þrjá­tíu árum, eða í apríl 1994, var Disney-útgáfan af Fríðu og dýr­inu frum­sýnd á Broadway. Sýningin átti eftir að marka tíma­mót hjá fyr­ir­tæk­inu, verða mik­il­vægur hluti af end­ur­reisn Disney á tíunda ára­tugnum og umbreyta söng­leikja­upp­færslum á Broadway. Nærri tutt­ugu árum seinna kom Frost sem storm­sveipur í kvik­mynda­hús og varð órjúf­an­legur hluti af upp­eldi heillar kyn­slóðar. Óum­flýj­an­lega upp­færslan á Broadway varð ekki sá ofursmellur sem fyr­ir­tækið óskaði en rak­aði samt inn seðlum. Gísli Örn Garð­ars­son var ráð­inn af fyr­ir­tæk­inu til að end­ur­hugsa svið­setn­ing­una og er upp­færslan risa­vaxið sam­nor­rænt verk­efni. Mikið hvílir á herðum Gísla Arnar en hann lyftir grettistaki með aðstoð frá stórum hópi lista­fólks. Fyrsta og lík­lega hug­rakkasta skrefið var að end­ur­þýða verkið.

„Mikið hvílir á herðum Gísla Arnar en hann lyftir grettistaki með aðstoð frá stórum hópi lista­fólks.“

Skeleggur Bragi Valdimar

Bragi Valdimar Skúlason mætir skel­eggur til leiks og töfrar fram sér­deilis góða þýð­ingu, bæði talað mál og söng­texta. Orðfærið er upp­fært til að passa inn í sam­tím­ann en þýð­andi gætir þess þó að sáldra ekki of miklum slettum yfir ævin­týra­heim­inn. Söng­text­arnir lifna við í túlkun tón­list­ar­stjór­anna og þrum­andi hljóm­sveitar.

Sögu­þráð­inn þarf kannski ekki að kynna fyrir mörgum en í stuttu máli fjallar Frost um ævin­týri og örlög systr­anna Elsu og Önnu sem eru aðskildar í æsku eftir töfraslys, en náð­ar­gáfu fjöl­skyld­unnar verður að halda leyndri fyrir almenn­ingi þó ástæður þess séu eilítið óljósar. Eftir annað töfraslys við krýn­ing­ar­at­höfn Elsu flýr hún kon­ungs­ríkið í leit að frelsi en Anna er stað­ráðin í að hjálpa systur sinni að snúa aftur til sam­fé­lags­ins.

Vala Kristín er stórt hjarta sýningarinnar

Hildur Vala Bald­urs­dóttir og Vala Kristín Eiríks­dóttir leika syst­urnar, Elsu og Önnu. Ætla mætti að aðal­hetja sög­unnar sé Elsa en ein­angrun hennar, innri bar­átta og hræðsla við eigin töfra­mátt fellur í skugg­ann af svað­il­för Önnu, bæði lík­am­lega og til­finn­inga­lega. Hildur Vala er með kraft­mikla söng­rödd sem fær svo sann­ar­lega að njóta sín í stóra núm­eri sýn­ing­ar­innar, Ég er frjáls, en er svo­lítið fjar­læg í fram­komu. Vala Kristín er stóra hjarta sýn­ing­ar­innar þar sem leikur og söngur smella saman í frammi­stöðu sem er hríf­andi og bráð­fyndin í senn. Anna sprettur ljós­lif­andi fram í öllum sínum brussu­skap og barna­leg­heitum, mann­leg og sam­úð­ar­full.

Mennina í þeirra lífi, reyndar er einn þeirra snjó­karl, leika Guðjón Davíð Karlsson, Kjartan Darri Krist­jáns­son og Almar Blær Sig­ur­jóns­son. Hver og einn þeirra kemur með eitt­hvað ólíkt að borð­inu: Guðjón Davíð heillar börnin upp úr skónum í hlut­verki Ólafs, Kjartan Darri dug­mik­ill í hlut­verki Krist­jáns og Almar Blær er í ess­inu sínu í hlut­verki Hans, drauma­prins­ins sem er ekki allur eins þar sem hann er séður.

„Þegar öllu er á botn­inn hvolft er Frost ekki um hetju­dáðir ein­stak­linga heldur sam­vinnu og fjöl­skyldu­kær­leik sem er holl áminn­ing fyrir nútíma­sam­fé­lag“

Ungt fólk að springa úr hæfileikum

Minni hlut­verkin eru mýmörg. Þar má helst nefna Ólafíu Hrönn Jóns­dóttur og Bjarna Snæ­björns­son, bæði taka þau sín smáu hlut­verk föstum tökum og eiga skín­andi senur. Aðrir full­orðnir leik­arar hverfa svo­lítið í bak­grunn­inn en í heild­ina leggj­ast allir á árarnar til að sigla þess­ari gildu galeiðu í höfn. Yngri útgáf­urnar af systr­unum hrífa áhorf­endur með sér með ein­lægn­ina að vopni. For­vitni­legt verður að sjá þegar þessi yngsta kyn­slóð leik­ara vex úr grasi því þetta unga fólk er að springa úr hæfi­leikum, enda hafa þau fengið góða skólun.

Hæfi­leik­a­ríkir ungir leik­arar. For­vitni­legt verður að sjá þegar þessi yngsta kyn­slóð leik­ara vex úr grasi því þetta unga fólk er að springa úr hæfi­leikum, enda hafa þau fengið góða skólun.

Gísli Örn stýrir her­leg­heit­unum með traustri hendi. Áherslan er sett á leik­hús­töfrana, ekki skemmti­garð­inn. Eitt lítið trampólín falið í fjöl­unum getur nefni­lega vakið tölu­vert meiri kæti en tölvu­væddar kúnstir. Leik­mynda­hönnun Barkar Jóns­sonar end­ur­speglar þessa hug­mynda­fræði með lit­ríkri og leik­andi leik­mynd sem gefur leik­hópnum rými til að ferð­ast um stóra sviðið nán­ast án tak­mark­ana. Sviðs­fólkið á heiður skilið fyrir sitt fram­tak. Að sjá Kristján svífa á vængjum ást­ar­innar minnir skemmti­lega á upp­færslu Vest­ur­ports á Rómeó og Júlíu. Ásta Jónína Arn­ar­dóttir sprengir skal­ann með frá­bærri mynd­bands­hönnun. Leik­hús­töfr­arnir eru síðan skrúf­aðir í botn undir stærsta lagi sýn­ing­ar­innar, Ég er frjáls, í eft­ir­minni­legu sjón­ar­spili. Regn­boga­regn­hlífin er síðan lítil en gull­fal­leg við­bót undir lok sýn­ing­ar­innar, smá­at­riðin skipta nefni­lega öllu máli.

Um fjölskyldukærleika

Margt gerir bún­inga­hönn­uð­ur­inn Christina Lovery vel og þar eru kjólar Elsu í sér­flokki en annað heppn­ast síður. Þar ber helst að nefna ball­kjól­ana í byrjun sýn­ingar sem orka gam­al­dags, fyr­ir­ferð­ar­miklir og krump­aðir. Einnig eru lopa­sund­fötin nán­ast heilsu­spill­andi sjón­mengun og hár­koll­urnar mis­jafnar að gæðum. Chantelle Carey þekkir stóra svið Þjóð­leik­húss­ins vel enda eru sviðs­hreyf­ing­arnar sem saum­aðar inn í fram­vind­una. Dans­at­riðin eru orku­mikil en skilja tak­markað eftir sig, fyrir utan Þetta redd­ast sem er dans­andi skemmtun.

Frost hefur nú þegar slegið í gegn enda yfir fjöru­tíu sýn­ingar komnar í sölu, aftur á móti er miða­verðið í dýr­ara lagi og ekki hlaupið að því að kaupa miða fyrir vísi­tölu­fjöl­skyld­una. Gísli Örn stýrir Disney-galeið­unni í örugga höfn með leik­hús­töfrana að leið­ar­ljósi. Vala Kristín er hríf­andi hjarta söng­leiks­ins en Hildur Vala klifrar í hæstu hæðir með túlkun sinni á Ég er frjáls. Þegar öllu er á botn­inn hvolft er Frost ekki um hetju­dáðir ein­stak­linga heldur sam­vinnu og fjöl­skyldu­kær­leik sem er holl áminn­ing fyrir nútíma­sam­fé­lag.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár