Að morgni dags Það getur reynst þraut­inni þyngra að vera árrisull á Íslandi, sér­stak­lega í svartasta skamm­deg­inu. En nú fer dag­inn að lengja. Mynd: Golli

Máttur morgunhananna

Til­hugs­unin um að stilla vekjara­klukk­una klukkan 5:00 er kannski ekki heill­andi. En ávinn­ing­ur­inn getur verið stór­kost­legur. Það segja að minnsta kosti morg­un­han­arnir. Hreyfing, hug­leiðsla og smá sjálfs­rækt geta gert gæfumun­inn. „Trikkið er að fara á fætur áður en haus­inn fer að segja þér eitt­hvað annað,“ segir morg­un­han­inn Dagbjört Rún­ars­dóttir.

„Sigraðu morg­un­inn – Lyftu upp líf­inu“

Þannig hljóðar und­ir­tit­ill sjálfs­hjálp­ar­bók­ar­innar The 5 AM Club. Bókin hefur ekki verið gefin út á íslensku en gæti útlagst sem „Morg­un­hana­klúbb­ur­inn“. Í bók­inni, sem er skóla­bók­ar­dæmi um sjálfs­hjálp­ar­bók, leiðir höf­und­ur­inn, Robert Sharma, les­endur í gegnum það sem hann kallar „bylt­ing­ar­kennda morg­un­rútínu“ sem hann hefur þróað í meira en tvo ára­tugi.

Sharma er lýst sem „goð­sagna­kenndum leið­toga og fram­úr­skar­andi frammi­stöðu­sér­fræð­ingi“, það munar ekki um minna. En hvað sem því líður þá eru skila­boð hans ein­föld: Með því að vakna fyrr, helst klukkan fimm, munt þú auka lífs­gæði þín og ham­ingju á þessum flóknu tímum sem heim­ur­inn er í dag. 

Þegar Sharma kynnti þessa hug­mynda­fræði, fyrir rúmum 20 árum, fólst það í að vakna fyrr, helst klukkan fimm, og ein­blína á eigin vellíðan. Þannig á fjöl­skyldu­fólk að vakna að minnsta kosti klukku­tíma á undan öðrum á heim­il­inu og skipta …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár