Reykjanesbær lokar sundlaugum og biðlar til íbúa að draga úr rafmagnsnotkun

Erfið staða er komin upp í ýmsum bæjum og byggð­ar­lögum á Reykja­nes­inu eftir að heita­vatns­lögn HS Veitna rofn­aði eftir að hraun flæddi yfir leiðsl­una. Svið­stjóri umhverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar segir að búið sé að loka sund­laugum og skrúfa fyrir alla óþarfa heita­vatns­notkun. Þá sé byrjað að ræða hugs­an­lega flutn­inga á fólki frá hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Reykjanesbær lokar sundlaugum og biðlar til íbúa að draga úr rafmagnsnotkun
Stofn­lögn HS-Veitna rofn­aði fyrir skömmu þegar hraun flæddi yfir leiðsl­una Mynd: Golli

Neyð­ar­á­stand blasir við íbúum Reykja­nes­inu eftir hraun flæddi yfir stofn­lögn HS Veitna. En lögnin sér Reykja­nesbæ, Grinda­vík, Suð­ur­nesjabæ og Vogum fyrir heitu vatni. 

Heim­ildin hafði sam­band við Guðlaug Helga Sig­ur­jóns­son, svið­stjóra umhverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar, sem situr um þessa mundir í aðgerða­stjórn almanna­varna í Reykja­nesbæ. En bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Kjartan Már Kjart­ans­son, er um þessar mundir staddur erlendis. 

Guð­laugur segir að eign­ar­vernd sé helst for­gangs­at­riðið í við­bragðs­á­ætlun bæj­ar­yf­ir­valda.

„Nú erum við fyrst og fremst að hugsa um eign­ar­vernd og halda hita í hús­næði eins og hægt er. Það var ákveðið að skóla­hald ætti að vera óbreytt alla­vega þennan dag í dag. En það er hægt segja það að það verður ekki skóla­hald á morgun. Við höfum lokað sund­laugum, öllum óþarfa hita sem við erum að nota, svo sem gervi­gras­velli og fleiri stöðum,“ segir Guð­laugur.

Þá segir Guð­laugur að gert sé ráð fyrir að heita­vatn­laust verði í bænum þegar vatns­afls­birgðir í miðl­un­ar­tönkum klár­ast, en gert er ráð fyrir að þeir end­ist í sex til 12 klukku­stundir.

Guð­laugur telur ólík­legt að raf­magn fari af bænum. „Það verður kannski mögu­lega skert raf­magn. Og við beinum til fólks að vera ekki nota mikið umfram raf­magn í heima­húsum með raf­magns­hit­urum, kerfið mun ekki hafa það.“

Spurður hvort til standi að flytja íbúa úr bænum vegna skorts á heitu vatni segir Guð­laugur að enn sem komið er standi ekki til að flytja almenna íbúa úr bænum.  Hins vegar sé farið að ræða þann mögu­leika að flytja fólk sem dvelur á hjúkr­un­ar­heim­ilum og aðra sem þurfa aðstoð við flutn­ing úr bænum. „Við erum aðeins farin að skoða það.“ 

Vatnaveröld skellir í lás og skrúfar fyrir heita vatnið

„Það verða bara allir að vera rólegir,“ segir Hafdís Alma Karls­dóttir, for­stöðu­kona í Vatna­ver­öld í Reykja­nesbæ í sam­tali við Heim­ild­ina. Dagurinn í Vatna­ver­öld hófst eins og hver annar fimmtu­dagur þrátt fyrir fregnir af eld­gosi í morg­unsárið. Dagurinn tók hins vegar óvænta stefnu þegar heita­vatns­lögnin sem liggur frá Svarts­engi til Fitja í Reykja­nesbæ fór undir hraun.

„Við fengum hring­ingu frá hita­veit­unni rétt um hálf ell­efu í morgun þar sem við vorum beðin um að minnka heita­vatns­notkun. Það var farið strax í það og við hættum að hleypa ofan í stuttu eftir það. Það var engin breyt­ing fyrr en við fengum þetta sím­tal,“ segir Hafdís Alma.

„Við erum bara að þrífa, það er ekk­ert mikið um þetta að segja, við tökum þessu bara rólega og vinnum eftir þeim upp­lýs­ingum sem við höfum hverju sinni,“ segir Hafdís Alma. „Það er bara lokað.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár