Morguninn eftir ummæli Bjarna mættu menn með hótanir

Með einni Facebook-færslu utan­rík­is­ráð­herra opn­uð­ust dyr fyrir útlend­inga­andúð sem streymdi inn um athuga­semda­kerfið og flæddi yfir það. Morg­un­inn eftir birt­ingu færsl­unnar komu þrír menn að tjaldi flótta­mann­anna og höfðu uppi hót­anir.

Vð tjaldið
Vð tjaldið Mohammed Tariq Ali Alkawamleh segir að Palest­ínu­menn­irnir hafi fundið fyrir áhrifum færslu utan­rík­is­ráð­herra á eigin skinni. Mynd: Golli

Drasl, erlendir glæpa­menn, fólk sem lifir á kerf­inu, fólk sem „við“ þurfum að verj­ast „af karl­mennsku“. Þessi orð, og fleiri verri, lét fólk falla í athuga­semdum við færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra um palest­ínska flótta­menn sem hafa í mót­mæla­skyni dvalið í tjöldum fyrir utan Alþingi í um mánuð. 

Þar lýsti Bjarni yfir and­stöðu sinni við mót­mælin og sagði undir lokin að herða þyrfti reglur um hæl­is­leit­endur, auka eft­ir­lit og styrkja lög­regl­una með auknum heim­ildum í bar­átt­unni gegn brota­starf­semi, þar með talið alþjóð­legri brota­starf­semi.

Fjöl­margir komu flótta­mönn­unum til varnar í athuga­semda­kerf­inu og var pólarís­er­ingin mjög skýr. Ann­að­hvort var Bjarni kall­aður ómann­legur eða boð­beri sann­leik­ans. 

Umræða á þessum nótum ein­skorð­ast ekki við athuga­semda­kerfið. Eyrún Eyþórs­dóttir, lektor við lög­reglu­fræði­deild Háskól­ans á Akureyri, segir að umræðan um hæl­is­leit­endur sé almennt mjög pólaríseruð. 

„Það er hópur sem talar um að það eigi að taka á móti öllum og svo er …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Erlendis hafa miðju- og aðeins-hægri-við-miðju-flokkar reynt að laða fylki hægri flokka aftur að sér með því að tala með meiri hörku um útlendingamál.
    Reynslan var þó að það skilar engum árangri nema þeim að efla enn meira kraftana ýst til hægri. Það sést glöggt hér heima á umræðunum sem spretta núna upp í kjölfari orða Bjarna. Ekki sé ég merki um vitsmunalegar umræður heldur bara meira skítkast.
    0
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Takk, Ragnhildur!
    1
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Hættið að fjalla um þetta mál svo ég tali ekki um að gefa þessu lygapakki rödd, annars fer ég út með mína áskrift.
    -5
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Sitt sýnist hverjum
    -1
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það hefur lengi verið vitað að Bjarni er formaður AfI, eða er það kallað XD?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár