<span>Aukin kynjaskipting í Krýsuvík:</span> Ofbeldismaður og þolandi ekki saman í meðferð

Aukin kynjaskipting í Krýsuvík: Ofbeldismaður og þolandi ekki saman í meðferð

Stefnt er að því að opna þrjú ný pláss fyrir konur á með­ferð­ar­heim­il­inu Krýsuvík í febr­úar. Fram­kvæmda­stjóri Krýsu­vík­ur­sam­tak­anna segir það almenna stefnu í dag að auka kynja­skipt­ingu í fíkni­með­ferð. Þekktur ofbeld­is­maður hefur lengi verið á biðlista eftir með­ferð en kemst hvergi að vegna sögu sinnar.

„Við erum í þeim fasa að kynja­skipta með­ferð­inni meira. Við erum að reyna að mæta konum betur og styrkja þær,“ segir Elías Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Krýsu­vík­ur­sam­tak­anna. „Með­ferðin er kynja­skipt að hluta en í þessum töl­uðu orðum erum við að byggja kvenna­álmu þannig að þær verði meira út af fyrir sig. Sam­skipti kynj­anna eru oft við­kvæm þegar fólk er í með­ferð,“ segir hann. 

Krýsu­vík­ur­sam­tökin reka með­ferð­ar­heim­ilið Krýsuvík. Með­ferðin bygg­ist á tólf spora kerf­inu og er að lág­marki sex mán­uðir. 

Ákall hefur verið eftir auk­inni kynja­skipt­ingu í með­ferð. Það kom meðal ann­ars fram í nið­ur­stöðum rann­sóknar á vegum Rót­ar­innar árið 2017 um reynslu kvenna af fíkni­með­ferð. Þá sögðu 34,6% kvenna að þær hefðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í með­ferð, 12% fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og 28% fyrir and­legu ofbeldi í með­ferð.

Elías segir hratt brugð­ist við ef starfs­fólk verður vart við ofbeldi af hálfu skjól­stæð­inga. „Ef það er ofbeld­is­hegðun þá bæði sjáum …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár