Ríkið þarf að borga 20 til 25 milljarða á ári til að skapa nýja þjóðarsátt

Ríkið þarf að borga 20 til 25 milljarða á ári til að skapa nýja þjóðarsátt

Kominn er verð­miði á það sem rík­is­sjóður verður að koma með að borð­inu svo hægt verði að gera kjara­samn­inga um hóf­legar launa­hækk­anir á almennum vinnu­mark­aði til þriggja ára. Ríkið þarf að borga 30 til 50 þús­und krónur á mán­uði í nýjar barna- og vaxta­bætur til heim­ila í lægri og milli tekju­hópum.

Sú heild­stæða áætlun sem breið­fylk­ing verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur mótað fyrir kom­andi kjara­við­ræður, og á að vera for­senda fyrir nýrri þjóð­ar­sátt, gerir ráð fyrir umtals­verðri útgjalda­aukn­ingu úr rík­is­sjóði. 

Í aðsendri grein sem birt­ist á Heim­ild­inni í morgun segir Stefán Ólafsson, pró­fessor emi­ritus sem starfar sem sér­fræð­ingur hjá einu stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins Eflingu, að slík þjóð­ar­sátt muni snú­ast um að ná verð­lagi og vöxtum hratt niður með hóf­legum launa­hækk­unum í samn­ingi til þriggja ára og sam­stilltu átaki allra, ekki síst fyr­ir­tækja. „Þetta verði gert mögu­legt með end­ur­reisn til­færslu­kerfa heim­il­anna, sem skili sér í auknum greiðslum til barna­bóta og hús­næð­is­stuðn­ings, sem nemi um 30-50 þús­und krónum til heim­ila í lægri og milli tekju­hópum. Þetta myndi kosta ríkið um 20-25 millj­arða auka­lega á ári.“

Í grein­inni segir að slík aðgerð myndi færa til­færslu­kerfin í átt að því sem …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár