Ljúft að losna við umferðarpirringinn

„Ég held að allir sem hafi stundað þetta skilji þetta,“ segir einn við­mæl­andi Heim­ild­ar­innar sem finnur á eigin skinni hvað það gerir henni gott að hjóla til og frá vinnu, í stað þess að fara á bílnum. Rann­sóknir benda til þess að það geti verið betra fyrir and­lega líðan fólks að hjóla í vinn­una og ýmsir sem hjóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu virð­ast upp­lifa að svo sé. Þó að veðrið sé stundum skítt er flest betra en að sitja fastur í umferð.

Ljúft að losna við umferðarpirringinn
Hjól­reiðar Þeim fjölgar sem fara hjólandi flestra ferða sinna, ekki síst með til­komu raf­hjóla. Vís­bend­ingar eru um að það geti bætt lík­am­lega og and­lega heilsu og við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segj­ast finna það á eigin skinni. Mynd: Golli

Fjöl­margar rann­sóknir á sviði heil­brigð­is­vís­inda hafa í gegnum árin stað­fest tengsl reglu­legrar hreyf­ingar við lík­am­lega heilsu. Rann­sak­endur hafa einnig reynt að átta sig á tengslum hreyf­ingar við and­lega heilsu og oft­ast kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hreyf­ing, ekki síst úti í nátt­úr­unni, geri sál­ar­tetr­inu gott.

Í tengslum við and­lega heilsu og vellíðan hafa rann­sak­endur einnig skoðað sér­tækt hvort ferða­mát­inn sem fólk velur sér til og frá vinnu eða skóla hafi áhrif á líðan þess. Ýmsar rann­sóknir sem hafa komið fram á und­an­förnum árum virð­ast benda til þess að akstur til og frá vinnu, hvað þá dvöl í umferð­ar­teppum, dragi úr vellíðan og valdi stressi, á meðan að virkir ferða­mátar eins og hjól­reiðar eða ganga geti stuðlað að bættri líðan.

Rannsókn sem fram­kvæmd var í Bret­landi fyrir tæpum ára­tug síðan sýndi að fólk sem hjólaði eða gekk í vinn­una, og fólk sem not­aði almenn­ings­sam­göngur raunar líka, upp­lifði meiri vellíðan …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár