Flagg­skipið Noma opn­aði 2003 en til­kynnt hefur verið að staðnum verði lokað í árs­lok 2024. Veit­inga­stað­ur­inn hefur marg­sinnis verið val­inn sá besti í heimi. Mynd: AFP

Skuggahliðin á velgengninni

Danskir veit­inga­staðir hafa á örfáum árum skot­ist upp á stjörnu­him­in­inn. 27 staðir í land­inu skarta sam­tals 38 Michelin-stjörnum og einn þeirra hefur marg­sinnis verið val­inn besti veit­inga­staður heims. Á þess­ari vel­gengni er hins vegar skugga­hlið sem ekki er haft hátt um.

Danir hafa lengi haft orð á sér fyrir að vera mikið fyrir mat og drykk. Pylsur, smør­rebrød, pur­u­steik, rauð­kál, síld, bjór og snafs koma strax upp í huga margra þegar minnst er á danskan mat og mat­ar­gerð.     

Stundum er haft á orði að flest í henni ver­öld fari í ein­hvers konar hringi og stjórn­ist iðu­lega af tísku­sveiflum, það á við um danska mat­inn. Pyls­urnar hafa látið undan síga, í eina tíð sátu þær einar að skyndi­bita­mark­aðnum en þannig er það ekki lengur. Kannski kemur þeirra tími aftur. Smør­rebr­ødet glat­aði á tíma­bili nokkru af vin­sældum sínum en er nú aftur komið í tísku ef svo má að orði kom­ast. 

Noma – nordisk mad

Árið 2003 var opn­aður nýr veit­inga­staður í Kaup­manna­höfn. Stað­ur­inn var á Krist­jáns­höfn gegnt Nýhöfn­inni, í Nor­datl­antes brygge, sama húsi og íslenska sendi­ráðið. Þessi nýi veit­inga­staður fékk nafnið Noma. Nafnið vís­aði til stefnu stofn­enda stað­ar­ins, No-ma, nor­rænn matur. Noma var í far­ar­broddi í því sem gjarnan var kallað nýja nor­ræna eld­húsið, sem í stuttu máli sner­ist um að nýta hrá­efni úr nærum­hverf­inu, „ekki alltaf að sækja vatnið yfir læk­inn“ og þess í stað varð­veita mat­ar­menn­ing­ar­arf Norð­ur­land­anna. Stofn­end­urnir voru þrír þekktir danskir mat­reiðslu­menn, yfir­kokk­ur­inn og helsti hug­mynda­smiður Noma var René Redzepi.

Noma fékk frá upp­hafi gagn­rýni fyrir hátt verð­lag og að mat­ur­inn þar „væri ekki fyrir fólkið, bara fyrir fína fólkið“ mátti iðu­lega lesa í fjöl­miðlum. Það breytti ekki því að mat­ur­inn sem boðið var upp á féll í „kramið“ hjá virtum bragð­lauka­sér­fræð­ingum og hefur fimm sinnum verið val­inn besti veit­inga­staður í heimi í hinni þekktu Michelin-veit­inga­staða­hand­bók. Noma er ekki lengur til húsa á „bryggj­unni“ eins og þetta gamla pakk­hús er iðu­lega kallað, heldur skammt frá. Tilkynnt hefur verið að veit­inga­staðnum verði lokað í árs­lok 2024.

Hverju hefur Noma breytt?

Í nýlegri umfjöllun eins af stóru dönsku fjöl­miðl­unum var þessi spurn­ing lögð fyrir nokkra ein­stak­linga sem fjalla um mat og veit­inga­staði í dönskum miðlum. Samdóma álit þeirra var að Noma hefði komið Danmörku ræki­lega „á kortið“ og verið öðrum hvatn­ing til nýj­unga. Skapað ný við­mið. 

„Noma fékk frá upp­hafi gagn­rýni fyrir hátt verð­lag og að mat­ur­inn þar „væri ekki fyrir fólkið, bara fyrir fína fólkið““

Í þessu sam­bandi má benda á að nú eru 27 veit­inga­staðir í Danmörku sem sam­tals geta státað af 38 Michelin-stjörnum. Þótt Michelin-veit­inga­staða­hand­bókin sé ekki „stóri­dómur“ yfir öllum heims­ins veit­inga­stöðum þykir eft­ir­sókn­ar­vert að kom­ast þar á blað og geta hengt stað­fest­ingu þess efnis við inn­gang­inn.  

Ekki allt rósrautt

Fyrir nokkrum árum fóru að heyr­ast raddir um að ekki væri allt eins og best yrði á kosið í eld­hús­unum á dönskum veit­inga­stöðum. Þær raddir voru í fyrstu lág­værar, en hafa upp á síðkastið orðið hávær­ari. Í apríl árið 2022 birt­ist í dag­blað­inu Politi­ken löng umfjöllun um vinnu­að­stæður á dönskum veit­inga­stöðum. Þessi umfjöllun hleypti af stað miklum umræðum um þessi mál og óhætt að segja að ýmis­legt sem fram kom í Politi­ken hafi komið mörgum á óvart. Öðrum en þeim sem til þekktu. Umfjöllun blaðs­ins var byggð á fjölda við­tala við mat­reiðslu- og þjónsnema, og fyrr­ver­andi nema.

Enn fremur starf­andi og fyrr­ver­andi kokka og annað starfs­fólk veit­inga­staða. Enginn þeirra sem við var rætt vildi koma fram undir nafni af ótta við atvinnu­missi eða að lenda á eins konar svörtum lista veit­inga­húsa­eig­enda og geta ekki fengið vinnu. Vitað er að slíkur listi fyr­ir­finnst. Enginn við­mæl­enda var því nefndur á nafn og sama gildir um veit­inga­húsin sem í hlut áttu. Það segir ákveðna sögu að eng­inn starf­andi kokkur eða veit­inga­húsa­eig­andi and­mælti frá­sögn Politi­ken. 

Ótrúleg lesning

Margt sem fram kom í umfjöllun Politi­ken, og síðar fleiri fjöl­miðla, hljómar næstum ótrú­lega. Einn mat­reiðslu­nemi, stúlka, sagði frá því að hún og fleiri nemar hefðu einu sinni unnið 38 klukku­stundir í einni lotu, með tveimur 15 mín­útna hléum. „Við gátum varla staðið á fót­unum og ég var með verk í aug­unum í marga daga á eftir.“ Mat­reiðslu­nemar mega ekki vinna meira en 13 klukku­stundir á dag en yfir­kokk­ur­inn sagði að allir yrðu að vinna til að ljúka verk­efn­inu. Mat­reiðslu­nem­arnir eru neðstir í röð­inni í eld­hús­inu og mega iðu­lega sæta háði og spotti.

Í könnun danska vinnu­eft­ir­lits­ins, sem náði til 30 þús­und starfs­manna, karla og kvenna í mörgum starfs­greinum, kom fram að 20 pró­sent starfs­manna á börum og veit­inga­stöðum sögð­ust hafa orðið fyrir margs konar áreitni, ekki síst kyn­ferð­is­legri. Þetta hlut­fall er langtum hærra en á öðrum vinnu­stöðum. Í könnun sem danska mann­rétt­inda­stofn­unin gerði árið 2019 sögð­ust 37 pró­sent mat­reiðslu- og þjóna­nema hafa orðið fyrir áreitni og óvið­eig­andi fram­komu sam­starfs­fólks í eld­hús­inu. Meðal kven­kyns nema var hlut­fallið 51 pró­sent.

Margir við­mæl­enda Politi­ken greindu frá ein­elti, sem þeir eða aðrir á vinnu­staðnum hefðu orðið fyrir. Starfs­fólk með annan hör­und­s­lit en hvítan mætti iðu­lega sæta því að vera upp­nefnt, eða kallað það sem Danir nefna n-orðið. Á vin­sælum veit­inga­stað á Frið­riks­bergi líkti eig­andi stað­ar­ins tveimur starfs­mönnum af erlendum upp­runa við hunda af því þeir skildu ekki allt sem sagt var.  

Hér hefur fátt eitt verið nefnt sem kom fram í umfjöllun Politi­ken.

Vinnuvikan langt fram yfir samninga

Fram kom í við­tölum Politi­ken að reglum um hámarks­vinnu­tíma, 13 klukku­stundum á dag, sé nán­ast aldrei fylgt og vinnu­vikan fari langt fram yfir það sem kveðið sé á um í samn­ingum, sem kveður á um 37 klukku­stunda vinnu­viku. Og enn fremur að sam­an­lagður vinnu­tími tveggja vikna megi ekki fara yfir 86 klukku­stundir og yfir­vinna skuli launuð.

Í mörgum til­vikum fái nem­arnir ekki borgað fyrir yfir­vinn­una. Einn sagði frá því að sam­kvæmt samn­ingi hefði hann átt að mæta klukkan 12 á hádegi en sér og öðrum nemum hefði verið gert að mæta klukkan 9 á morgn­ana.

Árið 2013 urðu for­svars­menn Noma að biðj­ast afsök­unar á að hafa til­kynnt ólaun­uðum sjálf­boða­liðum sem komu til starfa á veit­inga­staðnum að þeir myndu lenda á svarta list­anum fyrr­nefnda, ef þeir hættu áður en þriggja mán­aða reynslu­tíma­bili lyki, eða skrif­uðu um reynslu sína. Ekki kom síður á óvart að heims­þekktur veit­inga­staður væri með ólaun­aða sjálf­boða­liða í vinnu. Ástæður þess að ungt fólk sækir í þetta er lík­lega sú að það þyki eft­ir­sókn­ar­vert að hafa verið í eld­hús­inu hjá Noma. Síðar kom í ljós að fleiri veit­inga­staðir en Noma not­uð­ust við ólaun­aða starfs­menn.

Færri vilja í kokkinn og þjóninn  

Aðsókn í mat­reiðslu- og þjóna­nám hefur farið minnk­andi á síð­ustu árum. Tals­maður Horesta, sam­taka fyr­ir­tækja í veit­inga­rekstri og ferða­mennsku, sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, minni aðsókn vera áhyggju­efni. Hann sagði ástæð­urnar nokkrar og nefndi land­lægan slæman vinnu­staða­móral, lág laun og langan vinnu­tíma. „Okkur hefur ekki tek­ist breyta vinnu­staða­móralnum. Þótt víða sé allt í góðu lagi eru svörtu sauð­irnir alltof margir,“ sagði tals­maður Horesta.  

 

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Þetta á eftir að verða eins hér - sé það ekki þegar orðið það.
    0
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Það eru miklu fleiri en veitinga geirinn sem notst við ólaunaða starfsmenn. Hér eru atvinnulausir sendir út í “praktik” sem sumsstaðar varir allt að 2 árum án þess að vinnustaðurinn taki nokkurntimann upp veskið! Þetta á sérstaklega við um matvöruverslanir eins og Rema1000 og fleiri.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár