Kannski það sem þarf: hugrekki!  – Verið að sprengja fólk í tætlur og við ætlum ekki að hafa skoðun á því

Kannski það sem þarf: hugrekki! – Verið að sprengja fólk í tætlur og við ætlum ekki að hafa skoðun á því

Margir mót­mæla því að RÚV taki þátt í Eurovision ef Ísrael verður ekki meinuð þátt­taka. Þjóð­þekktur útvarps­maður, Ólafur Páll Gunn­ars­son, og pró­fessor í heim­speki, Eyja Margrét Jóhanna Brynjars­dóttir, ræða hér og rök­styðja af hverju þátt­taka á þeim for­sendum er röng.

Þegar þetta er skrifað liggur fyrir að RÚV muni taka þátt í Eurovi­son. FTT, stjórn Félags tón­skálda og texta­höf­unda, skorar á útvarps­stjóra að vera ekki með í keppn­inni nema Ísrael verði meinuð þátt­taka.

Ólafur Páll Gunn­ars­son, þjóð­þekktur starfs­maður RÚV, er meðal þeirra sem mót­mælt hafa að RÚV taki þátt í keppn­inni með Ísrael. Hann skrif­aði yfir­lýs­ingu þess efnis á Facebook. En hann er fyrst og fremst dæmi um almennan borg­ara sem hlýddi sam­visku sinni, með­vit­aður um að það er afstaða að gera ekk­ert. Að hin venju­lega mann­eskja getur verið sek – ef hún gerir ekk­ert, eins og Anna Frank skrif­aði.

Ólafur Páll, betur þekktur sem Óli Palli, hefur lengi fylgt RÚV. Árið 1991 hóf hann að vinna í sum­ar­afleys­ingum á tækni­deild­inni. Sem hljóð­maður, útsend­ing­ar­maður á Rás 1. Svo byrj­aði hann …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mig grunar að gerfigreindin hafi ekki hugmyndaflug til að taka þá fáránlegu afstöðu sem raun ber vitni í þessu stríði og eða viðlíka yfirráðum í skjóli fjárhagslegs styrks, eins og dæmin sanna hérna heima, vega þess að þeir sem stjórni eru svo næs í viðmóti og fari í öllu eftir sínum engin reglum. Áróðurinn er ótrúlega sterkur ef hann bara fær sínu framgengt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár