Skömmin fór með fjölskyldulífið

Skömmin fór með fjölskyldulífið

Sigríður Pét­urs­dóttir er dóttir, móðir og fyrr­ver­andi maki ein­stak­linga sem hafa þjáðst af geð­hvarfa­sýki. Eftir að hafa lifað með geð­rösk­unum alla tíð vill hún útrýma for­dómum. Skömmin getur nefni­lega verið lífs­hættu­leg og hindrað fólk í að sækja sér nauð­syn­lega hjálp, eins og þegar barns­faðir hennar valdi frekar skilnað en aðstoð. Með réttum lyfjum og stuðn­ingi er samt vel hægt að lifa góðu lífi.

Sigríður Pét­urs­dóttir kvik­mynda­fræð­ingur hefur átt heldur óvenju­legt lífs­hlaup, enda alin upp af konu sem ýmist var upp­full af fjöri eða lá í rúm­inu. Sveifl­urnar sem ein­kenndu heim­il­is­lífið voru í raun geð­hvarfa­sýki, en sem barn hafði hún engan skiln­ing á veik­indum móður sinnar. 

Síðar átti hún eftir að taka saman við mann og fór fljót­lega að gruna að allt væri ekki með felldu, þótt hann afneit­aði því sjálfur og tókst á við hnef­anum þar til hann missti allt frá sér. Sonur þeirra greind­ist síðan með sama sjúk­dóm og faðir hans og amma. Sigríður rekur hér sögu þeirra, en hún á sér engan draum heit­ari en að útrýma skömminni, sem hefur verið helsta hindr­unin þegar kemur að því að leita sér hjálpar, fá lyf og lifa góðu lífi. 

Móðirin

„Ég fædd­ist rétt utan við Húsavík í litlu húsi sem hét Skóg­ar­gerði, sem er löngu búið að rífa en það …

Kjósa
119
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bára Halldórsdóttir skrifaði
    Takk innilega. Þessi grein er hreinn sannleikur og ætti að vera skyldulesning.
    1
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Takk fyrir að deila sögu þinni Sigríður. Fordómar eru hræðsla við eitthvað sem við skiljum ekki, óttumst, getum ekki stjórnað og forðumst því að horfast í augu við. Þess vegna skiptir máli að segja frá, útskýra og gefa innsýn, eins og þú gerir svo fallega.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðstandendur fólks með geðrænar áskoranir

Lítil stelpa að reyna að bjarga mömmu sinni
ViðtalAðstandendur fólks með geðrænar áskoranir

Lítil stelpa að reyna að bjarga mömmu sinni

Emma Lind Þórs­dóttir var sjö ára þegar sjúkra­bíll var kall­aður að heim­il­inu og móðir hennar var flutt á geð­deild. Seinna heyrði hún sann­leik­ann um sjálf­skaða móður sinnar. Móðir hennar hefur náð bata, en Emma Lind glímir við afleið­ingar fátæktar og örygg­is­leysis, tví­tug stelpa sem er stað­ráðin í að skapa sér betra líf. Verst er að stundum virð­ist kerfið frekar vinna gegn henni en með, segir hún.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár