Hefðin „er að fara úr böndunum“

Súkkulað­i­daga­tal, snyrti­vöru­daga­tal, bjór­daga­tal eða jafn­vel unað­stækja­daga­tal? Sér­fræð­ingur hjá Land­vernd segir hefð­ina sem mynd­ast hefur í kringum jóla­daga­töl vera að fara úr bönd­unum. Þörf er á hug­ar­fars­breyt­ingu en vel er hægt að stytta bið­ina eftir jól­unum með nægju­sam­ari hætti.

Hefðin „er að fara úr böndunum“

Sú var tíðin að hlut­verk jóla­daga­tala ein­skorð­að­ist við að auð­velda börnum bið­ina löngu eftir jól­unum. Hver man ekki eftir jóla­daga­tali frá Lions-klúbbum með lít­illi tann­kremstúbu á toppnum til að rétt­læta súkkulað­i­átið?

Lakrids by Bülow - sæl­gætiEpal: 7.100 kr. Coolshop: 7.290 kr. Verð­munur: 190 kr.

Til­koma súkkulað­i­jóla­daga­tala á sínum tíma þótti mik­ill lúxus sam­an­borið við hefð­bundin jóla­daga­töl með fal­legum mynd­um. Lions-daga­tölin eru enn fáan­leg í dag en sam­keppnin er orðin harð­ari, svo virð­ist sem jóla­daga­töl séu ekki aðeins ætluð börnum. Nú geta börn og full­orðnir stytt bið­ina eftir jólum með ýmsum hætti, allt frá súkkulað­i­jóla­daga­tölum til snyrti­vöru-, bjór- og jafn­vel unað­stækja­daga­tala. 

Jóla­daga­töl eru komin í hóp mark­aðs­fyr­ir­bæra sem ein­kenna jóla­ver­tíð­ina og bæt­ast þar í hóp ógrynnis afslátt­ar­daga sem inn­leiddir hafa verið að banda­rískri fyr­ir­mynd. „Þetta er oft eitt­hvað sem við þurfum ekki, þetta er ein­hver hefð sem er að byggj­ast upp og …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Harpa Böðvarsdóttir skrifaði
    Satt! Við erum alltof ginkeypt fyrir nýjungum og látum teyma okkur á asnaeyrunum í neyslu kjaftæðinu 😏
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár