„Líðan fólks er afskaplega misjöfn og hún sveiflast. Það getur verið dagamunur á hvernig Grindvíkingum líður eftir atburði síðustu vikna. Það er mjög mikilvægt að þau fái sálræna aðstoð,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur hjá Rauða krossinum. Hún starfar í þjónustumiðstöðinni sem var opnuð á hádegi á fimmtudag. Það eru Almannavarnir og Rauði kross Íslands sem standa að miðstöðinni.
Frá því að hún var opnuð hafa á bilinu 150-160 Grindvíkingar leitað sér aðstoðar þar, segir Elfa Dögg. „Þau koma hingað til að fá sálræna fyrstu hjálp. Lögð er áhersla á það og hér er þjálfað fólk frá Rauða krossinum sem tekur á móti fólki, býður uppá samtöl og nærveru. Fólk getur komið hvenær sem er yfir daginn,“ segir Elfa Dögg og bætir við að það sé mikilvægt að Grindvíkingar hittist og hlúi hver að öðrum. „Hér höfum við orðið vitni að mörgum fallegum augnablikum þó stutt sé síðan við opnuðum. Við erum að sjá fólk sem er að hittast og faðmast og styðja hvert annað. Það er nefnilega svo að enginn skilur betur líðan íbúanna en þau sem eru að ganga í gegnum það sama. Það er því mikilvægt að fólk hittist og tali saman og styðji hvert annað. Og það geta þau gert hér.“
„Fólk hefur miklar áhyggjur af húsnæðismálum og lífsviðurværi sínu“
Hún segir að velferðarsvið Grindavíkurbæjar sé einnig með aðstöðu í miðstöðinni. „Þetta er hugsað sem alhliða þjónustumiðstöð og hún mun þróast í takt við þarfir Grindvíkinga. Þá er hér hægt að fá aðstoð frá Vinnumálastofnun og hér er líka hugað er að húsnæðismálum.“
Elfa Dögg segir að á næstu dögum eigi allt sem Grindvíkingar þurfi að takast á við vegna atburðanna að vera aðgengilegt á einum stað. „Það er afskaplega erfitt fyrir fólk að þurfa að bíða eftir svörum varðandi þessi mál. Fólk hefur miklar áhyggjur af húsnæðismálum og lífsviðurværi sínu. Svo hefur verið mikil óvissa vegna skjálftanna í langan tíma þannig að fólk er mjög þreytt.“
Þjónustumiðstöðin er á þriðju hæð í Tryggvagötu 19, gamla Tollhúsinu og er opin alla virka daga milli 10 og 18.
Athugasemdir