Arnar Gunn­laugs­son Þjálfari karla­liðs Víkings leggur mikið upp úr því að skapa gott umhverfi fyrir leik­menn og nýtir sína eigin reynslu úr atvinnu­mennsku til þess. Mynd: Golli

„Ég þarf ekki að vera kóngurinn alls staðar“

Þjálfari Íslands­meist­ara Víkings, Arnar Gunn­laugs­son, ræðir árangur, þjálfun og mik­il­vægi þess að vera með kveikt á loft­net­inu.

„Við fengum nýjan hund inn á heim­ilið,“ segir Arnar Gunn­laugs­son, þjálf­ari karla­liðs Víkings í knatt­spyrnu, aðspurður hvað hann sé búinn að vera að gera síð­ustu vikur. „Ég fékk það hlut­verk að siða hann aðeins til.“

Á síð­asta tíma­bili leiddi Arnar lið Víkings til sig­urs í Bestu deild­inni og Mjólk­ur­bik­arnum. „Þetta var búið að vera langt og strangt tíma­bil, mikil pressa,“ segir Arnar sem tók sér pásu frá sam­fé­lags­miðlum eftir síð­asta leik­inn. „Ég slökkti á sím­anum í tvær vikur og svar­aði engum tölvu­póstum.“ Arnar nýtti tím­ann til að viðra nýja hund­inn og sinna fjöl­skyld­unni.

Umhverfið

Arnar ólst upp á Akranesi og spil­aði fyrir knatt­spyrnu­fé­lagið ÍA á sínum upp­vaxt­ar­árum ásamt tví­bura­bróður sínum, Bjarka Gunn­laugs­syni. Þeir héldu báðir utan í atvinnu­mennsku og spil­uðu fyrir íslenska lands­liðið. 

Eftir atvinnu­mennsku tóku við nokkur ár í við­skipta­líf­inu en á end­anum kall­aði fót­bolt­inn Arnar heim á ný. Hann tók við hlut­verki aðstoð­ar­þjálf­ara …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár