Það felst uppreisn í því að lesa bók

Arndís Þór­ar­ins­dóttir segir barna­bóka­höf­unda óhjá­kvæmi­lega alltaf einni kyn­slóð á eftir sér, að skrifa um sína barn­æsku fyrir börn dags­ins í dag og eru þannig í elt­ing­ar­leik við sam­tím­ann, að reyna að ná utan um hann og skilja hann. Hún segir freist­andi að smætta vanda­mál barna í dag og kenna snjall­símum einum um þau. Vanda­málið sé hins vegar ekki svo ein­falt.

Það felst uppreisn í því að lesa bók
Ekki sann­gjarnt Arndís segir freist­andi að finna ein­föld svör við erf­iðum spurn­ingum hvað varðar börn. Það sé því ekki sann­gjarnt að áfell­ast börn þó orða­forði þeirra hafi tekið breyt­ingum. Mynd: Hörður Sveinsson

Arndís Þór­ar­ins­dóttir er ein okkar fremstu barna­bóka­höf­unda, en hún hefur unnið Íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki barna- og ung­menna­bóka, og bók hennar Kollhnís er til­nefnd til barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs. Arndís hefur skrifað um blokkir á heimsenda, nær­buxna­verk­smiðjur og fim­leika­drengi, en á dög­unum kom út nýjasta bók hennar og Huldu Sigrúnar Bjarna­dóttur, Mömmu­skipti.

Heim­ildin ræddi við hana um áhyggjur full­orð­inna af lestri barna, rétt barna til einka­lífs, og ósk hennar um frek­ari átök í barna­bókum. Allt saman yfir heitu tei í múmín­bolla.

Barna­bóka­skrif eru svo­lítið áhuga­verður gjörn­ingur vegna les­enda­hóps­ins. Börn eru jú þjóð­fé­lags­hópur sem við til­heyrðum öll einu sinni en fæstir barna­bóka­höf­undar til­heyra enn þá.

A: „Já, þetta er inn­byggð þver­stæða. Barna­bóka­höf­undar eru óhjá­kvæmi­lega einni kyn­slóð á eftir sér, við erum alltaf að skrifa um okkar barn­æsku, en frá því að ég var barn seint á síð­ustu öld hefur mikið breyst. Þar er maður alltaf í smá elt­ing­ar­leik við …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár