Maður stendur í stof­unni á sum­ar­húsi sínu á Suður-Jótlandi eftir að það flæddi þangað inn í óveðr­inu sem skall á 21. októ­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: AFP

Mestu flóð sem sögur fara af

Fyrir og um síð­ustu helgi urðu ein­hver mestu flóð sem sögur fara af í Danmörku. Víða hækk­aði sjáv­ar­borð um meira en tvo metra, og á nokkrum stöðum um meira en fjóra metra. Eyði­legg­ingin er gríð­ar­leg og fjár­hags­legt tjón nemur millj­örðum danskra króna.

Fár­viðrið sem gekk yfir Danmörku dag­ana 20. og 21. októ­ber kom ekki á óvart þótt fæstir hafi kannski reiknað með að það yrði jafn ofsa­fengið og raunin varð. Danska veð­ur­stofan hafði í um það bil viku varað lands­menn við og hvatt til við­bún­aðar. Storm­flod er hug­takið sem Danir nota yfir slíkt fár­viðri, þá fer saman lágur loft­þrýst­ingur og stormur og flóða­hættan er mest í stór­streymi.

Danir þekkja vel það tjón sem flóð getur valdið. Til eru aldagamlar frá­sagnir af slíku en á síð­ustu ára­tugum hafa slíkir atburðir orðið æ algeng­ari enda liggur Danmörk mjög lágt, er flad som en pandekage!              

Í des­em­ber 1999 gerði mik­inn storm við vest­ur­strönd Jótlands, sjáv­ar­borð hækk­aði um rúma fimm metra og olli miklu tjóni. Sjö árum síðar, í nóv­em­ber 2006, varð mikið tjón í flóði, hund­ruð húsa skemmd­ust mikið. Þá hafði verið hvöss vest­an­átt sem þrýsti sjónum suður Kattegat og inn í Eystra­salt. Þegar storm­inn lægði gekk sjór­inn til baka og olli flóði á svæðum sunnan við Litla- og Stóra­belti, „badekarseffekt“ kalla Danir slíkt fyr­ir­bæri. Stíf norð­an­átt hefur margoft þrýst sjó inn í Hró­arskeldu­fjörð­inn á Sjálandi, sem er rúm­lega 40 kíló­metra langur. Árið 2014 olli storm­ur­inn Bodil miklum skemmdum á vík­inga­skipa­safn­inu fyrir botni fjarð­ar­ins, í kjöl­farið var rætt um að flytja safnið en ekki hefur orðið af því enn sem komið er. Árið 2017 urðu mikil flóð á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og við Køgeflóa, í fram­haldi af því ákváðu borg­ar­yf­ir­völd í Kaup­manna­höfn að verja millj­örðum króna til flóða­varna. Á þess­ari upp­taln­ingu sést að flóð og tjón af þeirra völdum eru síður en svo óþekkt fyr­ir­bæri í Danmörku.

Varnargarðar, sandpokar og risaslöngur

Ýmsar aðferðir eru til að varna því að sjór gangi á land. Við Kaup­manna­höfn hafa á síð­ustu árum verið gerðir varn­ar­garðar, einkum úr stein­steypu. Slíkir garðar kosta mikið fé en telj­ast líka örugg vörn ef rétt eru gerðir. Önnur aðferð felst í að leggja eins konar risa­slöngur með­fram strönd­inni. Þær eru vand­lega festar og fylltar vatni þegar á þarf að halda. Þriðja aðferðin felst í því að stafla sand­pokum sem mynda eins konar vegg. Síð­ast­nefnda aðferðin er sú sem almenn­ingur notar gjarna til að verja hús sín fyrir ágangi sjávar. 

Þegar ljóst var í hvað stefndi var reynt að bregð­ast við. Varnir sem fyrir voru styrktar og almenn­ingur, búsettur nálægt sjó og við strendur, reyndi eftir mætti að tryggja eigur sínar. Eigendur húsa á helstu hættu­svæðum voru hvattir til að forða sér að heiman.   

Viðvaranir veðurfræðinga ekki orðum auknar

Eins og fyrr var nefnt hafði danska veð­ur­stofan um margra daga skeið varað við hætt­unni á stór­flóði. Dögum saman hafði verið vest­an­átt sem gerði að verkum að gríð­ar­mik­ill sjór safn­að­ist upp, ef svo mætti segja, í Eystra­salti. Þegar vest­an­vind­inum slot­aði byrj­aði sjór­inn að leita til baka úr Eystra­salt­inu, gegnum Kattegat.

Í sterkum aust­an­vindi, eins og núna var raunin, leitar sjór­inn einkum gegnum sundin tvö, Stóra­belti, milli Sjálands og Fjóns og Litla­belti, milli Fjóns og Jótlands. Leiðin að Litla­belti er greið­ari fyrir sjó­inn en sundið jafn­framt mjórra og þess vegna urðu strand­svæðin þar, og eyj­arnar úti fyrir Sjálandi og Fjóni illa úti. Sjórinn leit­aði líka norður gegnum Eyr­ar­sund, en í minna mæli þó. Það er þetta ástand sem veldur stór­flóðum, eins og því sem átti sér stað fyrir viku síðan. Sundin tvö anna ekki öllum sjónum sem vill í gegn, sjáv­ar­borðið hækkar og sjór­inn gengur á land. Sér­fræð­ingar dönsku veð­ur­stof­unnar höfðu talað um að þetta gæti orðið svo­kallað „100 ára flóð“ það er að segja flóð sem búast má við með 100 ára milli­bili. Sumir töldu að þetta gæti orðið enn meira.   

Tjónið gríðarlegt

Á mið­viku­deg­inum 18. októ­ber var byrjað að hvessa, veð­ur­fræð­ingar sögðu það aðeins upp­hafið og það reynd­ist rétt. Tveimur dögum síðar var komið ofsa­veður, aust­an­rok og rign­ing. Yfirborð sjávar steig hratt og brátt kom í ljós að víða máttu varnir sín lít­ils, sjór­inn braut sér leið og sóp­aði burt flestu sem fyrir varð. Það var þó ekki fyrr en sljákkað hafði í veðr­inu og það versta var yfir­staðið sem afleið­ingar veð­urofs­ans sem nefndur var Babet komu í ljós. Og þær voru langtum meiri en flesta hafði órað fyrir. Sjáv­ar­borðið hafði víða hækkað um meira en 2 metra, á Præstø (sem er ekki eyja þrátt fyrir nafnið) á Suður-Sjálandi hækk­aði sjáv­ar­borðið um 2,8 metra svo dæmi sé tekið. Á eyj­unni Ærø sést hvorki tangur né tetur af  lit­skrúð­ugum smá­hýsum sem stóðu á sand­rifi á suð­aust­ur­hluta eyj­unnar. 

FlóðSkilti við höfn­ina í Sond­er­borg á Suður-Jótlandi voru við það að fara á kaf í síð­ustu viku.

Danskir fjöl­miðlar hafa und­an­farna daga birt hund­ruð mynda sem sýna eyði­legg­ing­una: möl­brotin hús, stór­skemmdir smá­bátar sem kast­ast hafa á land, stáss­stofur þar sem sófar og önnur hús­gögn fljóta í metra djúpum sjó o.s.frv. 

Skilgreint sem „stormflod“

Ljóst er að tjónið af völdum veð­urs­ins er mikið. Trygg­inga­fé­lögum hafa borist þús­undir til­kynn­inga um tjón og til­kynn­ing­unum fjölgar dag frá degi. Strax vökn­uðu spurn­ingar varð­andi trygg­ingar. Nat­ur­skaderådet (hlið­stætt Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands) metur, eftir til­teknum aðferðum, hvort um hafi verið að ræða storm­flod, sem kannski mætti þýða sem nátt­úru­ham­farir. Ef um var að ræða storm­flod fær almenn­ingur og fyr­ir­tæki bætur, sam­kvæmt til­teknum reglum. Fram­kvæmda­stjóri Nat­ur­skaderådet til­kynnti síð­degis á laug­ar­deg­inum 21. októ­ber að óveðrið væri skil­greint sem storm­flod. Þeir sem orðið hafa fyrir tjóni þurfa að til­kynna sínu trygg­inga­fé­lagi um tjónið, ráð­lagt er að taka myndir sem sýna skemmdir.

Trygg­inga­fé­lagið fer svo með málið áfram til Nat­ur­skaderådet. Nat­ur­skaderådet heyrir undir atvinnu­mála­ráðu­neytið og Morten Bødskov ráð­herra greindi frá því í fjöl­miðlum að ham­fara­trygg­inga­sjóð­ur­inn væri með rík­is­á­byrgð og ef eigið fé sjóðs­ins dygði ekki til kæmi til kasta rík­is­sjóðs að brúa bilið. Þegar þessar línur eru settar á blað er ekki komið í ljós hve mikið tjónið af völdum ham­far­anna er í pen­ingum talið en ljóst að það er geysi­mikið. 

Stjórnvöld boða stórauknar flóðavarnir

Í ham­för­unum fyrir tíu dögum kom ber­lega í ljós að flóða­vörnum er mjög ábóta­vant þótt margt hafi verið gert á und­an­förnum árum. 

Á síð­ustu þremur árum hefur verið unnið að verk­á­ætlun á vegum rík­is­stjórn­ar­innar um flóða­varnir. Magnus Heunicke umhverf­is­ráð­herra kynnti áætl­un­ina sl. mánu­dag. Hann til­kynnti jafn­framt um fjár­veit­ingu sem sam­svarar 26 millj­örðum íslenskra króna til verks­ins og tók fram að þetta væri fyrsta skrefið af mörgum sem nauð­syn­legt væri að stíga. Stærstum hluta þess­arar fjár­veit­ingar verður varið í að stöðva land­eyð­ingu á vest­ur­strönd Jótlands. Þar eru langar sand­strendur sem Norð­ur­sjór­inn herjar stöðugt á, ef svo má að orði kom­ast.

Umhverf­is­ráð­herr­ann sagði að til að stöðva land­eyð­ing­una væri lagt til að sandi yrði dælt upp á strend­urnar og þær þannig end­ur­nýj­aðar. Í kynn­ingu sinni sagði ráð­herr­ann ekk­ert hvaðan „nýi“ sand­ur­inn ætti að koma en í verk­á­ætl­un­inni er gert ráð fyrir að hann komi úr haf­inu undan landi. Sandinum verði dælt með kröft­ugum dælum upp á strend­urnar. Þegar ráð­herr­ann var spurður um ástæður þess að stærstur hluti pen­ing­anna færi í þetta verk­efni svar­aði hann því til að ágangur sjávar væri lang­mestur á vest­ur­strönd Jótlands þótt það svæði hefði ekki orðið fyrir barð­inu á veð­ur­hamnum núna um dag­inn, eins og ráð­herr­ann komst að orði.  

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Svo vilja allir á Íslandi notast við uppfyllingar ? Fróðlegt að sjá hvernig málin verða hér á landi ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár