Baneitrað samband á bæjarskrifstofunum

Ásakanir um mútur, fjár­kúgun og fjár­svik hafa ítrekað komið upp í tengslum við bygg­ingu þriggja stærstu íþrótta­mann­virkja Kópa­vogs­bæjar. Verktaki sem fékk millj­arða verk hjá Kópa­vogsbæ greiddi fyrir skemmti­ferð maka og emb­ætt­is­manna bæj­ar­ins, sem mælt höfðu með til­boði verk­tak­ans. Fjársvika­kæra gegn honum og starfs­manni bæj­ar­ins var felld niður. „Það hefði átt að rann­saka þetta sem mútur,“ segir bæj­ar­full­trúi og furðar sig á með­ferð bæj­ar­stjóra á mál­inu, sem var ekki eins­dæmi.

„Mér finnst það óásætt­an­legt og eig­in­lega furðu­legt að bæj­ar­stjóri hafi ekki upp­lýst okkur um nið­ur­stöð­una þegar hún barst Kópa­vogsbæ í apríl 2019,“ segir Theódóra Þor­steins­dóttir, bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Kópavogi, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Nið­ur­staðan sem hún talar um er sú ákvörðun Hér­aðs­sak­sókn­ara að fella niður rann­sókn á hendur tveimur mönnum fyrir fjár- og umboðs­svik, sem Kópa­vogs­bær kærði í árlok árið 2016.

„Ég spurð­ist fyrir um málið 2020 og fékk munn­legar upp­lýs­ingar um hvernig það end­aði. Engin gögn fylgdu þeirri ákvörðun, né skrif­legar skýr­ingar til okkar,“ segir Theódóra sem fékk fyrst fulla mynd af því hvernig mál­inu lyktaði, í kjöl­far fyr­ir­spurnar frá Heim­ild­inni á dög­unum. Hana rak í rogastans þegar hún upp­götv­aði að málið hefði aldrei verið kært eða rann­sakað, eins og það brot sem henni þótti borð­leggj­andi að hefði átt að rann­saka það.

„Það hefði átt að rann­saka þetta sem mútur.“

Símtalið frá bókaranum

…
Kjósa
103
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Spillingin þrífst vel undir pilsfaldi veldis Sjálfstæðisflokksins
    0
  • GJI
    Gísli Jónas Ingólfsson skrifaði
    Frábær grein.
    0
  • HGS
    Hanna Gunnhildur Sigurðardóttir skrifaði
    "... En það var aldrei neitt leyndarmál að við hefðum sótt okkur þennan ferðastyrk, þó auðvitað sé það alveg rétt að þarna var ég að brjóta siðareglur og varð bara að gangast við því,“ "

    -Af hverju hefðu starfsmenn Kópavogsbæjar átt að sækja um styrk fyrir skemmtiferð ? Eða kemur einhvers staðar fram í gögnum málsins að ferðin hafi verið mikilvæg og upplýsandi vegna vinnu viðkomandi, vinnu á stjórnsýslustigi á Íslandi ?
    0
  • SJ
    Svala Jónsdóttir skrifaði
    Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi = spilling og mútur í áraraðir. Samt kaus þriðjungur bæjarbúa spillinguna aftur yfir sig 2022. Kópavogsbúum virðist líka spilling.
    2
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Þvílík krufning💪👁‍🗨🤘Þið eruð langbest!!
    13
  • SE
    Steinason ehf. skrifaði
    Flott úttekt. Í sveitarfélögunum er það einmitt samband verktaka við bæinn og stjórnmálaflokka sem þarf að rannsaka. Greiðslur verktaka til ráðandi flokka beint og óbeint (í gegnum auglýsingar). Mútur eru enn hálfgert tabú í umræðunni og réttarkerfið veikt og virðist líta undan.
    12
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    xD mafían í allri sinni dýrð!
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ísland í mútum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár