Markmiðinu náð þegar sögurnar opna augu fólks

María Rán Guð­jóns­dóttir, þýð­andi og útgef­andi hjá bóka­for­lag­inu Angústúru, stofn­aði það fyrir sjö árum. Eitt af sér­kennum for­lags­ins er mikil áhersla á þýddar bækur frá öllum heims­hornum. Í við­tali við Heim­ild­ina ræðir hún um mik­il­vægi þýð­inga og að þær geti opnað augu fólks og dregið úr for­dómum.

Markmiðinu náð þegar sögurnar opna augu fólks
Þýðingar frá fjar­lægum löndum María Rán Guð­jóns­dóttir, útgef­andi hjá Angústúru, seg­ist alltaf hafa verið hrifin af þýddum bókum, sér­stak­lega frá fjar­læg­ari löndum, af því þær geta opnað nýja heima fyrir les­and­anum. Hún sést hér með bækur úr seríu Angústúru sem komið hafa út frá árinu 2016. Mynd: Hörður Sveinsson

„Það var svo merki­legt að það stóð upp maður á miðjum aldri og sagði að honum hafi fund­ist Ísland vera að taka á móti of mörgum flótta­mönnum og að hann hafi verið á móti þeim og þeir ættu bara að vera heima hjá sér. Svo hafi hann lesið bók­ina og hann sagð­ist horfa á þetta allt öðru­vísi. Takk fyrir að opna augu mín, sagði hann.“

Þetta segir María Rán Guð­jóns­dóttir, bóka­út­gef­andi og þýð­andi hjá for­lag­inu Angústúru. Hún gaf út bók­ina sem hún talar um þarna, Van­þakk­láta flótta­mann­inn eftir íranskan rit­höf­und, Dinu Nayeri. Upp­á­koman sem hún vísar í þarna var á Bók­mennta­há­tíð í Reykja­vík nú í vor og var íranski höf­undur bók­ar­innar meðal gesta. „Hann við­ur­kenndi þetta bara fyrir hópnum: Að hafa verið for­dóma­fullur. Ég hugs­aði bara að það er nákvæm­lega þetta sem ég vil að ger­ist. Þarna hafði eitt­hvað tek­ist hjá okkur.“ 

Lyklar að nýjum heimum

Síð­ast­liðin …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár