Orðin hans Bjarna: „Ég er miður mín“

„Völdum fylgir ábyrgð,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son er hann kynnti afsögn sína sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi,“ sagði hann svo um kaup föður síns á hlut í Íslands­banka. „Það hefði á alla kanta verið heppi­legra að ... hérna ... hann hefði sleppt þessu.“

Orðin hans Bjarna: „Ég er miður mín“
Í kast­ljós­inu Bjarni Bene­dikts­son: „Ég hef algjör­lega hreina sam­visku í þessu máli. Algjör­lega hreina sam­visku.“ Mynd: Golli

Ég verð að segja, svona fyrsta kastið, mér er brugðið við að lesa þessa nið­ur­stöðu,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son á blaða­manna­fundi í morgun þar sem hann til­kynnti um afsögn sína sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Það gerir hann í ljósi álits umboðs­manns alþingis þar sem fram kemur að Bjarni hafi verið van­hæfur til að selja föður sínum, Benedikt Sveins­syni, hlut í Íslands­banka á síð­asta ári.

Hér að neðan eru helstu orðin – og þau stærstu – sem Bjarni lét falla á blaða­manna­fund­inum.

„Ég er miður mín eftir að hafa séð þá nið­ur­stöðu að mér hafi brostið hæfi við mína ákvörð­un­ar­töku.“

„Ég hef algjör­lega hreina sam­visku í þessu máli. Algjör­lega hreina sam­visku.“

„Mér finnst margt í þessu áliti orka tví­mælis.“

„Stundum er sagt að lítil þúfa velti þungu hlassi. Og í þessu til­viki snýst málið um þátt­töku eins aðila í sein­asta útboði.“

„Það er óum­deilt að ég hafði ekki upp­lýs­ingar, í þessu máli, um þátt­töku þessa félags.“

„Hafandi sagt þetta þá vil ég taka af allan vafa um það, að ég tel mik­il­vægt að virða álit umboðs­manns alþingis.“

„Þetta segi ég fullum fetum þótt ég hafi á álit­inu mínar skoð­anir.“

„Og álitið er að mér hafi brostið hæfi í mál­inu. Þessa nið­ur­stöðu hyggst ég virða. Og ég tel í ljósi þess­arar nið­ur­stöðu að mér sé í reynd ókleift að starfa hér áfram sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.“

„Ég tel sömu­leiðis mjög mik­il­vægt að það sé skap­aður friður um þau mik­il­vægu verk­efni sem eru hér í þessu ráðu­neyti.“

„Það er af þess­ari ástæðu sem að ég hef ákveðið að láta af störfum sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.“

„Ég er sömu­leiðis með þess­ari ákvörðun minni að und­ir­strika að völdum fylgir ábyrgð.“

„Það hefur ekk­ert annað verið ákveðið þess­ari stundu“ – spurður hvort hann verði áfram for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Það er ekki alveg gott að segja á þess­ari stundu“ – spurður um hvaða þýð­ingu ákvörð­unin hafi fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. „Stundum verður maður bara að taka ákvarð­anir, eina í einu.“

„Ég hef algjöra sann­fær­ingu fyrir því að það sé þörf í okkar sam­fé­lagi fyrir að menn standi vörð um ákveðin gildi.“

„Þegar maður er kom­inn í þá stöðu að manni er í raun og veru ókleift að sinna verk­efnum sínum þá verður maður að horfast í augu við það.“

„Ég hef enga skyldu til að bera sér­staka virð­ingu fyrir hug­mynda­fræði­legum skoð­unum póli­tískra and­stæð­inga. En við erum að tala um mál af öðrum toga hér.“ – Um hvers vegna hann sé að segja af sér núna í ljósi þess að hann hefur oft verið gagn­rýndur fyrir störf sín.

„Já, ég myndi segja það.“ – um hvort að þetta sé alvar­leg­asta gagn­rýni sem hann hafi orðið fyrir

„Engin ákvörðun verið tekin um það“ – Spurður hvort hann taki við öðru ráðu­neyti

„Við erum þrjú odd­vitar í rík­is­stjórn­inni og berum ábyrgð á stjórn­ar­sátt­mál­anum. Ég hef skynjað mik­inn vilja til þess að halda verk­efn­unum lif­andi en það verður auð­vitað að meta það, meta hvort það er raun­hæft. Maður verður að horfast í augu við póli­tískan veru­leika.“

„100 pró­sent“ – Spurður hvort að frum­kvæðið að afsögn­inni komi frá honum alfarið.

„Ég tel að þetta sé rétt nið­ur­staða. Fyrir þetta ráðu­neyti. Fyrir mig. Fyrir flokk­inn minn. Og ef því er að skipta fyrir rík­is­stjórn­ina. Og ég tek hana alveg án til­lit til þess hvernig úr því mun spil­ast.“

„Þetta er vegna þess skugga sem varpað er yfir ráðu­neytið og mín störf hér í ráðu­neyt­inu í þessu til­tekna máli. Út af þessum ein­staka kaup­anda af þeim 24 þús­und sem hafa tekið þátt í útboð­unum.“

„Ég er ósam­mála þeim for­sendum sem eru lagðar hér til grund­vallar. En ég send fyrir þau gildi í mínum stjórn­málum að virða svona nið­ur­stöðu.“ – Spurður um hvort hann sé sam­mála því að hann hafi gert mis­tök.

„Ég ætla nú ekki að fara að taka þátt í því að fella slíka dóma um föður minn“ – Um hvort það hafi verið dóm­greind­ar­brestur af föður hans að taka þátt í útboð­inu. „Ég hef áður sagt að það hefði á alla kanta verið heppi­legra að ... hérna ... hann hefði sleppt þessu.“

„Það sem fer okkar í milli er ekki efni í fjöl­miðla held ég“ – Spurður hvort hann væri búinn að greina föður sínum frá ákvörðun sinni.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    „Ég hef algjörlega hreina samvisku í þessu máli. Algjörlega hreina samvisku.“

    Sagði siðblindi arðræningi þjóðarinnar og foringi stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisflokksins bjarN1 benediktsson.
    Og talandi um samvisku, þá hafa siðblint fólk ENGA samvisku, samkennd né samúð með öðrum og myndu ekki vita hvað samviska væri þótt hún klessti á þau í andlitið á hundra klómetra hraða á klukkustund.
    Samviska er bara orð sem þau hafa lært alveg eins og að læra að brosa á réttu augnabliki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár