Af hverju er ekki sniðugt að vera listamaður?

Lista­menn blómstra og rétt skrimta. Einn dag­inn á lista­mað­ur­inn heim­inn, þann næsta er hann dauð­ans djöf­uls­ins lúser. Er í alvöru góð hug­mynd að starfa sem lista­maður? Hvað þá sjálf­stætt starf­andi lista­maður! Bara eitt­hvað að túlka pík­una á sér, alltaf að reyna að redda sér pen­ingum og geta aldrei horft á Gísla Martein – eins og við­mæl­endur hér nefna.

Af hverju er ekki sniðugt að vera listamaður?

Samn­ing­ur­inn í leik­hús­inu var ekki end­ur­nýj­aður, útgef­andi vill ekki gefa út bók því bara 57 hræður og nokkur bóka­söfn keyptu þá síð­ustu; ein­söngv­ar­inn finnur hvergi öruggt skjól í list sinni; kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn er hrokk­inn í kulnun eftir að hafa skrifað hvert hand­ritið á fætur öðru upp á von og óvon með fjár­mögnun; uppi­stand­ar­inn fær ekk­ert að gera eftir að hafa stigið skrefi of langt í síð­asta brand­ara; dans­ar­inn finnur ekki vett­vang eftir að hafa dottið úr dans­flokknum; fiðlu­leik­ari í Sinfó fer í verk­fall og mynd­list­ar­mað­ur­inn er orð­inn leiður á að taka yfir­drátt.

Atvinnu­ör­yggi lista­manns­ins – líka þeirra sem burð­ast með náms­lán, eru með tíma­bund­inn samn­ing og skólaða með­vit­und um að það sé búið að gera flest undir sól­inni – er á pari við nekt­ar­dans­mey. Svo lengi sem lista­mað­ur­inn fær áheyrn með verk sitt og rödd, þá heldur hann hlut­verki sínu og getur þénað, þó að auð­vitað sé allur gang­ur­inn á …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár