Mynd: Shutterstock

Lífsskilyrði og heilsa fólks sem starfar við ræstingar mun verri en annarra

Staða fólks sem starfar við ræst­ingar er mun verri en ann­arra á vinnu­mark­aði ef litið er til fjár­hags­stöðu, stöðu á hús­næð­is­mark­aði, lík­am­legrar- og and­legrar heilsu, kuln­unar og rétt­inda­brota á vinnu­mark­aði. Kristín Heba Gísla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vörðu – Rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, segir nið­ur­stöð­urnar ekki koma beint á óvart. „En það kemur mér á óvart hversu slæm staðan er.“

„Fólk sem starfar við ræst­ingar er í verri stöðu en aðrir á vinnu­mark­aði á öllum mæli­kvörðum sem not­aðir eru. Og í mörgum til­fellum mun verri, það er sama hvert er litið,“ segir Kristín Heba Gísla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vörðu – Rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, um nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar um stöðu þeirra sem starfa við ræst­ingar. 

Í rann­sókn­inni eru lífs­skil­yrði og heilsa fólks sem starfar við ræst­ingar skoðuð út frá  fjár­hags­stöðu, stöðu á hús­næð­is­mark­aði, lík­am­legri- og and­legri heilsu, starfstengdri kulnun og rétt­inda­brotum á vinnu­mark­aði. „Við sjáum að þessi hópur stendur verr á öllum þessum mæli­kvörðum. Og á sumum mun, mun, mun verr,“ segir Kristín Heba. 

Þetta er í fyrsta sinn sem rann­sókn af þessu tagi er fram­kvæmd hér á landi og er mark­mið hennar að greina stöðu þeirra sem starfa við ræst­ingar í sam­an­burði við þau sem vinna önnur störf og varpa þannig ljósi á stöðu fólks sem vinnur erfið og oft og tíðum lágt launuð störf. „Það hefur verið okkur hjart­ans mál að skoða þennan hóp sér­stak­lega. Það eru miklar áhyggjur af þessum hópi innan for­svars­manna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar,“ segir Kristín Heba. Áhuginn kemur ekki síst frá stjórn Vörðu, sem er skipuð for­ystu­fólki innan verka­laýðs­hreyf­ing­ar­innar, en Varðan var stofnuð í maí 2020 af Alþýðu­sam­bandi Íslands og BSRB og sinnir fjöl­breyttum rann­sóknum sem varða lífs­kjör fólks á vinnu­mark­aði í víðu sam­hengi.

Tímabært að skoða stöðu fólks í ræst­ingum„Maður gaf sér fyr­ir­fram að staða þessa hóps væri mjög slæm en það kemur mér á óvart hversu slæm hún er,“ segir Kristín Heba Gísla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vörðu – Rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins.

Meirihluti á erfitt með að ná endum saman 

Sam­setn­ing þeirra sem starfa við ræst­ingar er mjög frá­brugðin sam­setn­ingu þeirra sem eru í öðrum starfs­greinum þegar litið er til kyns, ald­urs, upp­runa og fjöl­skyldu­stöðu. Þannig er mik­ill meiri­hluti þeirra sem starfa við ræst­ingar konur, eða 74,4 pró­sent, sam­an­borið við 45 pró­sent í öðrum störfum. Þá er ríf­lega þrír fjórðu hlutar þeirra sem starfa við ræst­ingar inn­flytj­endur, sam­an­borið við 26,1 pró­sent í öðrum störfum og um einn af hverjum tíu, 11,1 pró­sent, eru með annan húð­lit en hvítan, sam­an­borið við 3,9 pró­sent í öðrum störfum.   

Meðal helstu nið­ur­staðna má nefna að fjár­hags­staða þeirra sem starfa við ræst­ingar er verri en þeirra sem eru í öðrum störfum á öllum þeim heild­ar­mæli­kvörðum sem not­aðir eru til að meta fjár­hags­stöðu. Hærra hlut­fall fólks sem starfar við ræst­ingar á mjög erfitt, erfitt eða nokkuð erfitt með að ná endum saman, eða 59,3 pró­sent, sam­an­borið við 42,5 pró­sent í öðrum störfum, og mun hærra hlut­fall þeirra á erfitt eða mjög erfitt með að ná endum saman, eða 29,2 pró­sent sam­an­borið við 17,2 pró­sent í öðrum störfum. 

16,2%
hlut­fall fólks í ræst­ingum
með smá­lán

Fólk sem starfar við ræst­ingar á erf­ið­ara með að ná endum saman hver mán­aða­mót en þau sem eru í öðrum störfum. Þannig á 10,4 pró­sent starfs­fólks í ræst­ingum mjög erfitt með að ná endum saman, sam­an­borið við 6,3 pró­sent í öðrum störfum. Að sama skapi er lægra hlut­fall sem á mjög auð­velt með að ná endum saman, 4,4 pró­sent,
sam­an­borið við 8,4 pró­sent í öðrum störfum. 

6,8%
hlut­fall fólks í öðrum störfum
með smá­lán

Þegar litið er til efn­is­legs skorts er staða þeirra sem starfa í ræst­ingum verri á öllum sviðum. Hærra hlut­fall þeirra sem starfa við ræst­ingar en fólks í öðrum störfum er í van­skilum á leigu eða lánum, eða 9,3 pró­sent sam­an­borið við 4,6 pró­sent í öðrum störfum. Þá geta 38,5 pró­sent þeirra sem starfa við ræst­ingar ekki mætt óvæntum útgjöldum, sam­an­borið við 28 pró­sent fólks í öðrum störfum. Hlut­fallið er sömu­leiðis hærra þegar kemur að því að hafa  efni á árlegu fríi með fjöl­skyldu, kjöt-, fisk- eða sam­bæri­legri græn­met­is­mál­tíð annan hvern dag, síma, sjón­varps­tæki, þvotta­vél, bíl og að kynda húsa­kynni sín nægi­lega. 

Slæm fjár­hags­staða þeirra sem starfa við ræst­ingar hefur ekki ein­ungis áhrif á þeirra eigin lífs­skil­yrði heldur einnig á aðstæður barna þeirra. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sýna að sú slæma fjár­hags­staða sem þau sem starfa í ræst­ingum búa við hefur þau áhrif að þau eru einnig mun lík­legri til að geta ekki greitt fyrir grund­vall­ar­þætti fyrir börnin eins og nauð­syn­legan klæðnað, nær­ing­ar­ríkan mat, tóm­stundir og félags­líf í tengslum við skóla­starf, sökum slæmrar fjár­hags­stöðu. 

Sex af hverjum tíu búa við þunga byrði af húsnæðiskostnaði

91,2 pró­sent þeirra sem starfa við ræst­ingar býr við nokkra eða þunga byrði af hús­næð­is­kostn­aði og er hlut­fallið mun hærra en hjá þeim sem eru í öðrum störfum. Þá er mun lægra hlut­fall starfs­fólks í ræst­ingum sem býr í eigin hús­næði, 38,6 pró­sent, en fólk í öðrum störfum, eða 71,9 pró­sent. Að sama skapi er mun hærra hlut­fall sem býr í leigu­hús­næði á almennum mark­aði, eða 49,7 pró­sent sam­an­borið við 17,9 pró­sent, og nokkuð hærra hlut­fall er í leigu­hús­næði á vegum óhagn­að­ar­drif­anna leigu­sam­taka, eða 7 pró­sent sam­an­borið við 3,4 pró­sent fólks í öðrum störfum. 

46,1%
Fólk í ræst­ingum
sem telur and­lega heilsu sína slæma

Nið­ur­stöð­urnar sýna að and­leg- og lík­am­leg heilsa þeirra sem starfa við ræst­ingar er verri en þeirra sem eru í öðrum störfum. Þannig er lægra hlut­fall þeirra sem starfa við ræst­ingar sem metur lík­am­legt heilsu­far sitt mjög gott og frekar gott og hærra hlut­fall sem metur hana frekar slæma og mjög slæma. 

35,8%
Fólk í öðrum störfum
sem telur and­lega heilsu sína slæma

Mun hærra hlut­fall býr við slæma and­lega heilsu eða tæp­lega helm­ingur og hærra hlut­fall upp­lifir nær dag­lega öll þau nei­kvæðu and­legu ein­kenni sem spurt er um í könn­un­inni. 

Útvistun starfa dregur úr vellíðan starfsfólks 

Á und­an­förnum árum hefur útvistun starfa í rekstri ræst­inga­þjón­ustu færst í auk­ana. Kristín Heba bendir á að nýlegar rann­sóknar sýni fram á að einka­væð­ing opin­berrar þjón­ustu dragi úr vellíðan starfs­fólks.

„Það er verið að bjóða út ræst­ingar í auknum mæli. Þannig verður sá sem er að vinna við ræst­ingar ekki hluti af vinnu­staðnum af því að hann kemur utan frá en er að þrífa alltaf á sama stað en til­heyrir ekki hópnum og fær þá ekki þessa þætti sem eru hluti af vinnu­staðnum okkar og við fáum í kaup­bæti, að til­heyra hóp og fá ákveð­inn stuðn­ing.“ Fólk sem starfar við ræst­ingar upp­lifir sig þannig utan­velta. „Þú ert ekki að verja miklum tíma með sam­starfs­fólki, eins og við erum kannski vön á okkar vinnu­stöðum, þetta er eitt­hvað sem vantar.“ 

Kemur á óvart hversu slæm staðan er

Kristín Heba segir nið­ur­stöð­urnar sem slíkar ekki koma sér á óvart. „Maður gaf sér fyr­ir­fram að staða þessa hóps væri mjög slæm en það kemur mér á óvart hversu slæm staðan er. Þetta er í raun­inni ekki eitt­hvað sem kemur okkur á óvart. Þetta er búið að vera svona lengi og ég veit ekki hverjar lík­urnar eru á að það breyt­ist í náinni fram­tíð. Það þarf eitt­hvað annað gild­is­mat á þessi störf.“

Verka­lýðs­hreyf­ingin mun koma til með að nýta nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar til að berj­ast fyrir betri rétt­indum starfs­fólks í ræst­ingum að sögn Krist­ínar Hebu. „Það er aug­ljóst að þessi hópur situr eftir. ASÍ og BSRB eiga Vörðu og hafa óskað eftir þessum nið­ur­stöðum þannig ég vona að þær muni nýt­ast þeim í rétt­inda­bar­átt­unni.“

Kristín Heba segir nið­ur­stöð­urnar einnig vera sam­fé­lags­legan ávinn­ing. „Að það komi fram upp­lýs­ingar í fjöl­miðlum og opin­berri umræðu hvað mis­mun­andi hópar eru með mis­mun­andi stöðu. Það eru alls konar lausnir fyrir þá sem stjórna. Þetta á bæði erindi inn í verka­lýðs­hreyf­ing­una en líka fyrir stjórn­völd. Við trúum því að svona tölur fari ekki bara út í tómið heldur lifi áfram og verði not­aðar til að gera betur. Annars værum við ekki að standa í þessu.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ef þetta væri "karla" starf, þá fengju strákarnir áhættukaupauka
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ef forstjórann vantar í viku þá gerist ekkert ,en ef það er ekki þrifið í viku þá fer það ekki framhjá neinum. Við erum alltof blind á hversu mikilvægt þetta fólk er.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár