Mynd: Heiða Helgadóttir

Úrvinda í minnst metna starfi samfélagsins

Ræst­ingar eru lægst laun­aða starfs­grein atvinnu­lífs­ins. Flestir geta verið sam­mála um mik­il­vægi ræst­inga, en vart er hægt að ímynda sér ástand fyr­ir­tækja og stofn­ana ef þeirra nyti ekki við. Starfið er hins vegar ekki metið að verð­leikum innan sam­fé­lags­ins. Diljá Sig­urð­ar­dóttir lýsir reynslu sinni og ann­arra.

„Ræst­ingar eru erf­ið­asta starf sem nokkur maður getur unnið,“ sagði fyrr­ver­andi ræst­inga­kona við mig og ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt brjál­æð­is­lega ósam­mála. Hún vildi ekki koma fram undir nafni, vildi bara leggja þessa reynslu að baki sér, en sú virt­ist vera raunin með flesta þá sem ég tal­aði við.  

Eitt skipti varð að sjö

„Hvar lærir maður svona góða íslensku?“ spurði maður þegar ég spurði hvort ég mætti skúra þar sem skrif­borðið hans stóð. Hann greip kaffi­boll­ann sinn og rúll­aði sér á stólnum frá skrif­borð­inu. „Ætli hún hafi ekki fylgt með fæð­ing­ar­vott­orð­inu mínu,“ sagði ég og brosti asna­lega, og fékk að bragði spurn­ing­una sem ég hafði heyrt svo oft: „Nú, ertu íslensk??“ Ég dæsti. 

Ég vann við ræst­ingar í rúmt ár af lífi mínu og var 18 ára þegar ég byrj­aði. Mér hafði verið sagt upp á pitsu­stað vegna fækk­unar á starfs­fólki – …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár