Stoltið og heima­flot­inn Birgir Snæbjörn sýnir átta myndir af tog­urum Samherja, heima­flot­anum, í menn­ing­ar­hús­inu Bergi á Dalvík. Hann sést hér við mynd­irnar á vinnu­stof­unni sinni í Duggu­vog­inum í Reykja­vík. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Samherji hefur verið stolt Akureyrar og Norðurlands þar til nýverið“

Birgir Snæbjörn Birg­is­son mynd­list­ar­maður opnar sýn­ingu um Samherja á Dalvík. Hann segir að með verk­inu vilji hann eiga í sam­tali við Norð­lend­inga um Samherja og þær snúnu til­finn­ingar sem fólk ber í brjósti í garð fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég er Akur­eyr­ingur og er alinn upp við Samherja. Og ekki bara það, heldur þekki ég marga og teng­ist mörgum sem vinna hjá þeim. Það sem gerir þetta pínu snúið er að þetta fyr­ir­tæki var svo mikið stolt okkar og ætti að vera enn. En þetta er auð­vitað umdeil­an­legt í ljósi stöð­unnar,“ segir Birgir Snæbjörn Birg­is­son mynd­list­ar­maður sem opnar sýn­ingu með mál­verkum af tog­urum Samherja, heima­flot­anum eins og hann kallar þau, í Menn­ing­ar­hús­inu Bergi á Dalvík þann 23. sept­em­ber.

Um er að ræða átta myndir, verka­röð, sem Birgir Snæbjörn kallar „Stolt“. Verkið var hluti af stórri einka­sýn­ingu sem Birgir Snæbjörn hélt í Lista­safni Íslands í Reykja­vík í fyrra sem hét „Í hálfum hljóðum“. Samherji rekur stórt frysti­hús á Dalvík og er stærsti atvinnu­rek­and­inn í sveit­ar­fé­lag­inu. Útgerðin teng­ist bænum því sterkum böndum og fjár­magnar meðal ann­ars stóran hluta af Fiskideg­inum mikla sem hald­inn er þar árlega. 

Sýn­ing­ar­stjóri Bergs, Ragn­hildur …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár