Skiptir inná í upp­bót­ar­tíma Bjarni Bene­dikts­son skipar stjórn Banka­sýsl­unnar. Hann hefur nú skipt út allri stjórn­inni fjórum mán­uðum áður en hann hyggst leggja fram frum­varp til að leggja stofn­un­ina niður. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Bjarni skiptir út stjórn Bankasýslunnar – Frumvarp sem leggur hana niður lagt fram 2024

Öllum stjórn­ar­mönnum í Banka­sýslu rík­is­ins hefur verið skipt út. Tryggvi Pálsson er nýr for­maður stjórnar, en hann gagn­rýndi for­stjóra Banka­sýsl­unnar harð­lega fyrir sjö árum. Frumvarp til að leggja stofn­un­ina niður verður lagt fram í jan­úar næst­kom­andi.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skipti í dag út öllum þremur stjórn­ar­mönnum í Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og hefur séð um að selja þá hluti sem seldir hafa verið. Skip­un­ar­tími frá­far­andi stjórn­ar­manna: for­manns­ins Lárusar Blöndal, Vil­hjálms Bjarna­sonar og Mar­grétar Krist­manns­dóttur, rann út um miðjan síð­asta mánuð. Í þeirra stað hafa verið skipuð Tryggvi Pálsson, Þóra Hall­gríms­dóttir og Þórir Har­alds­son. Tryggvi er for­maður nýrrar stjórnar, en hann var stjórn­andi hjá Seðla­banka Íslands á árum áður og um tíma for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans. 

Hann ákvað að gefa ekki lengur kost á sér til setu í banka­ráð­inu á árinu 2016 vegna Borg­un­ar­máls­ins svo­kall­aða. Þá ákvörðun tók Tryggvi eftir að Jón Gunnar Jónsson, þá og nú for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, krafð­ist þess að hann segði af sér ásamt vara­for­manni banka­ráðs­ins og þáver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans. Samhliða því að Tryggvi, og fleiri með­limir banka­ráðs­ins, ákváðu að víkja sendu þau frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau sögðu Banka­sýsl­una hafa gengið „skrefi of langt“ með kröfum sínum. 

For­stjóri Banka­sýsl­unnar er ráð­inn, og eftir atvikum rek­inn, af stjórn stofn­un­ar­innar. Afdrif Jóns Gunnars í starfi heyra því í dag beint undir Tryggva, sem taldi hann hafa gengið of langt fyrir rúmum sjö árum, og þá stjórn sem hann stýrir. 

Margháttuð gagnrýni

Gustað hefur um Banka­sýslu rík­is­ins und­an­farin miss­eri. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum var birt stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­margir ann­markar hefðu verið á lok­uðu sölu­ferli Íslands­banka á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í bank­anum, sem fram fór í mars í fyrra, og var á ábyrgð Banka­sýslu rík­is­ins. Mikil gagn­rýni var sett fram á fram­göngu Banka­sýsl­unnar og starfs­manna hennar í því.

Nið­ur­staðan var sú að hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut rík­is­ins sem var seldur auk þess sem Banka­sýslan hafði ekki haft réttar upp­lýs­ingar um eft­ir­spurn þegar ákvörðun um verð og umfang sölu var tekin. Í skýrsl­unni segir að „upp­­lýs­ingar til ráð­herra í rök­studda mat­inu voru óná­­kvæmar bæði hvað varðar fjölda þeirra fjár­­­festa sem skráðu sig fyrir hlutum og heild­­ar­fjár­­hæð til­­­boða. Ákvörðun ráð­herra byggði því á óná­­kvæmum upp­­lýs­ing­­um.“

Í byrjun sumar var svo birt sátt sem Íslands­banki, einn þeirra sölu­ráð­gjafa sem Banka­sýsla réð til að selja hlut­inn, gerði við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands vegna alvar­legra, kerf­is­lægra og marg­þættra lög­brota sem framin voru í tengslum við útboðið. Sú nið­ur­staða hefur kost­aði Birnu Ein­ars­dóttur, sem hafði verið banka­stjóri Íslands­banka frá árinu 2008, og tvo aðra stjórn­endur starfið auk þess sem Íslands­banki sam­þykkti að borga næstum 1,2 millj­arða króna sekt vegna lög­brot­anna. Þá var þorra stjórn­ar­manna Íslands­banka skipt út á hlut­hafa­fundi sem fór fram seint í júlí.

Auk þessa stendur yfir athugun umboðs­manns Alþingis á hæfi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við söl­una í ljósi þess að félag föður hans var á meðal kaup­enda á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. 

For­stjóri Banka­sýsl­unnar og frá­far­andi stjórn­ar­for­maður hennar raunar líka hafa ekki gefið mikið fyrir þá gagn­rýni sem sett hefur verið fram á störf þeirra. Jón Gunnar sagði á þing­nefnd­ar­fundi í lok júní að sal­an á hlut rík­is­ins í Ís­lands­banka í mars í fyrra hafi ekki bara ver­ið eitt af far­sæl­ustu út­boð­um Ís­lands­sög­unn­ar held­ur „held­ur vænt­an­lega eitt af far­sæl­ustu hluta­fjárút­boð­um sem átti sér stað í Evr­ópu á síð­ustu mán­uð­um.“

Frumvarp til að leggja stofnunina niður kemur í janúar

Allt frá því að það kom í ljós að víða var pottur brot­inn í sölu­ferl­inu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í fyrra­vor hafa breyt­ingar á hlut­verki Banka­sýslu rík­is­ins legið í loft­inu.

Í yfir­lýs­ingu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands 19. apríl í fyrra sagði að rík­is­stjórn Íslands hefði ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins yrði lögð niður og inn­leitt yrði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. „Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþingis og að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. Frum­varp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er.“ 

Heim­ildin greindi frá því í byrjun júlí að stefnt væri að því að leggja fram frum­varp um stofnun Félaga­sýslu rík­is­ins á kom­andi þing­vetri, sam­kvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn mið­ils­ins. Í því ferli verði „kynnt nýtt fyr­ir­komu­lag varð­andi eign­ar­hald og ráð­stöfun eign­ar­hluta allra félaga í eigu rík­is­ins.“ Ein þeirra stofn­ana sem til stendur að leggja inn í Félaga­sýsl­una er Banka­sýsla rík­is­ins.

Í til­kynn­ingu sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag segir hins vegar að Bjarni Bene­dikts­son muni leggja slíkt frum­varp fram „í jan­úar 2024 og að það feli í sér að lög um Banka­sýslu rík­is­ins falli brott, og starf­semin verði þannig lögð niður í núver­andi mynd.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár