Eins manns harmleikur er annars afþreying

Inga Krist­jáns­dóttir er ókrýnd saka­mála­hlað­varps­drottn­ing Íslands. Í sumar fór hún til Banda­ríkj­anna og stund­aði myrka ferða­mennsku þegar hún heim­sótti meðal ann­ars heim­ili Ted Bundy og var við­stödd fyr­ir­töku í máli grun­aðs morð­ingja í Idaho. Hún seg­ist skilja þau sem furða sig á því hvernig hún geri afþr­ey­ingu úr harm­leik ann­arra en segir þetta allt snú­ast um for­vitni og að segja sögur.

Þegar morð á fjórum ung­mennum í háskóla­bænum Moscow í Idaho síð­asta vetur vakti heims­at­hygli, að minnsta kosti hjá áhuga­fólki um sönn saka­mál (e. true crime), fann Inga Krist­jáns­dóttir á sér að hún myndi fara og upp­lifa aðstæður á eigin skinni. „Ég fann strax að ég myndi fara þangað, ég fékk ein­hverja til­finn­ingu, ég verð að fara þangað, ég verð að sjá lengd­ina á milli húsa, ég verð að sjá þessa götu sem hann á að hafa keyrt, ég verð að sjá aftan á húsið. Ég veit það ekki, þetta var ótrú­lega sterk til­finn­ing,“ segir Inga, sem heldur úti einu vin­sælasta saka­mála­hlað­varpi á Íslandi, Illverk. 

Inga hefur gefið út yfir 500 þætti um hin ýmsu saka­mál, nær ein­göngu banda­rísk, og finnst henni fátt meira gef­andi en að kanna ofan í ill­verk ann­arra. Saka­mála­hlað­vörp, …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár